AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 29

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 29
Kjarrið og hraunið renna saman við byggðina. Fyrirtaks sólbaðssaðstaða, vaðlaug og heitir pottar til slökunar fyrir nemendur, starfsfólk skólans og hótelgesti. Háskólaþorpiö Bifröst landslagshönnun aö er skemmtilegt aö fást viö samspil manns og náttúru þar sem návígið er jafnmikiö og á Bifröst. Hraunið og kjarr- iö leita inn í byggöina þar sem börn eru aö leik og fullorðnir í krefjandi námi. Vinalegt og heimilislegt yfirbragð ein- kennir staöinn, stutt er á milli húsa og náttúran mikilfengleg. Á Bifröst fara nánast allir gangandi í vinnuna og skólann. Hönnun umhverfisins tekur miö af því og leitast er viö aö gefa gönguleiðunum rólegt yfir- bragö. í deiliskipulaginu er sterkur aöskilnaöur á bílaumferö og gangandi umferö. í útfærslunum er þessi aðskilnaður styrktur og eiga börnin því aö geta leikið sé óhult ásamt því aö náttúrunni er leyft aö flæöa inn í byggðina. í kringum nýjustu nem- endagarðana er gróft mosavaxið apalhrauniö látiö halda sér og mannvirkin, húsin, göturnar og stíg- arnir, falla inni í þetta stórbrotna hraunlandslag. í skjóli við háan trévegg er búiö aö koma upp baösvæöi fyrir bæöi nemendur og gesti. Mjúkir timburpallar í hlýlegum lit eru einkennandi fyrir svæöiö auk þess sem hraun og blandaður runna- gróður gefa svæöinu náttúrulegan svip. Til þess aö foreldrar geti fylgst meö börnunum er gott útsýni um allt baösvæöiö. Á þessu skjólgóöa svæöi er, auk vaðlaugar og heitra potta, fyrirtaks sólbaðsaðstaða. Uppistaöan í gróðri á svæöinu er íslenska birkiö en í bland viö það er plantað harögeröum blómstr- andi runnum auk birki- og reynitrjáa. Mikil áhersla er lögð á aö halda í einkenni landslagsins og öll tækifæri til þess að varðveita gamalt kjarr og hraun eru nýtt. Hlutverk verktaka og annarra sem koma aö vinnu viö þessar framkvæmdir er mikil- vægt. Á meðan á framkvæmdum stendur þarf aö giröa hraunsvæöin af og gæta þess að stórvirkar vinnuvélar vinni ekki spjöll á gróöri og hrauni. Einnig þurfa verktakar að vera vakandi fyrir vernd- unartækifærum. Sem dæmi má nefna að stígum hefur verið breytt til þess aö skemmtilegar kynja- myndir í hrauninu eyðileggist ekki. Mikil nýsköpun er í gangi innan veggja skólans og þarf landslagið aö hlúa aö og styöja viö þá vinnu. Sterk áhersla er lögö á aö ná fram sam- ræmdri heildarmynd umhverfisins. Náiö samstarf er milli yfirstjórnar skólans og landslagsarkitekts og mikil áhersla lögö á aö landslagið veröi til prýöi fyrir þá sem eiga eftir aö umgangast þaö í fram- tíðinni. ■ Gönguleiðir eru vel aðskildar frá bílaumferð en hraunið og birkitrén tengja þær við umhverfið. 27 BJÖRN JÓHANNSSON, LANDSLAGSARKITEKT

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.