AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Page 52
SIGURÐUR HARÐARSON, ARKITEKT
tilraunaskipulag á forendum veðurfars
.."ilraunaverkefnið Gjóla var kynnt og rætt
á málþingi sem Batteríiö hélt 17. maí sl.
og um 80 manns sóttu. Ritstjóri aVs fór
þess á leit aö gerö yröi grein fyrir verk-
efninu í tímaritinu. Hér verður stiklaö á
stóru en þeim sem vilja kynna sér málið
nánar er bent á heimasíðu Batterísins, www.arki-
tekt.is.
Verkefniö Gjóla hófst á árinu 1995 meö stofnun
fyrirtækisins Dús ehf. af arkitektafyrirtækjunum
Batteríinu og Teiknistofunni Noröra (Siguröur
Harðarson).
Hefur vinna viö verkefniö staðið yfir síöan með
styttri og lengri hléum.
Tilgangur verkefnisins var að gera tilraun til að
þróa vinnuaðferðir og lausnir í skipulagi og húsa-
hönnun sem byggðu á forsendum veðurfars, eink-
um er varðar vind, sól og skafsnjó. Markmiðið var
þannig að kanna leiðir til vinnulags sem betur en
hingað til tæki tillit til séríslenskra veðurfarsað-
stæðna í þeirri vissu og trú að þar mætti margt
færa til betri vegar. í samvinnu við Borgarskipulag
Reykjavíkur var svæðið Hamrahlíðarlönd við
Úlfarsfell valið.
Verkefnið er ekki unnið sem hefðbundinn skipu-
lagsundirbúningur framkvæmda heldur sem
rannsóknarverkefni þar sem tilteknir þættir hafa
forgang, í þessu tilviki veðurfar. Því hefur verk-
efnið verið einfaldað og ýmsum þáttum hefð-
bundinnar skipulagsvinnu verið ýtt til hliðar til þess
að minnka umfang verkefnisins og tryggja að
megin-markmið þess týnist ekki. Við vinnslu
verkefnisins hefur einnig verið horft framhjá þátt-
um eins og sveitarfélagamörkum og færslu á
Vesturlandsvegi eins og aðalskipulag gerir ráð
fyrir.
Leitað var eftir samstarfi og samráði við ýmsa
opinbera eða hálfopinbera aðila en einnig við er-
lenda ráðgjafa sem hafa sérfræðiþekkingu á
þessu sviði.
Verkefnið var fjármagnað með styrkjum frá
íbúðalánasjóði, áður Húsnæðisstofnun og Reykja-
50