AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 74

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 74
bókakynning fyrra kom út bókin Nye Byrum (New City Spaces í enskri útgáfu) eftir Jan Gehl og Lars Gemsoe, en auk þeirra komu aö þessu verki margir arkitektar og arkitektanemar viö arki- tektúrdeild Konunglega listaháskólans í Kaup- mannahöfn. í þessari bók er komið víöa við. Þar er rakin þróun í notkun borgarrýmis og fjallaö um hön- nun þess í einstökum atriðum á fjölmörgum sviöum. Lögö er áhersla á mikilvægi þess aö gangandi fólki sé gert hærra undir höfði og aö þaö fái nægilegt vel hannaö rými í borgum til heföbundinna samskipta. Bókin er mjög vönduö aö allri gerö, rösklega 260 blaðsíður, meö fjölmörgum myndum og teikningum sem sýna þá áherslu sem víöa um heim er lögð á aö mynda hágæöa umhverfi fyrir fólk í þéttbýli og hvernig það hefur veriö gert. Þótt flest dæmi í þessari bók séu frá suölægum löndum á hún samt sérstakt erindi til allra þeirra sem fást viö skipulag og hönnun þéttbýlis hér á landi. Útgefandi er Arkitektens forlag, www.arkfo.dk. Sjálfbær þróun Ný stefna fyrir Norðurlönd ýlega kom út skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar sem ber heitið Sjálfbær þróun - Ný stefna fyrir Noröurlönd. í upphafi skýrsl- unnar er fjallað um markmiö for- sætisráöherra Norðurlandanna um sjálfbæra þróun, en meö þau markmið aö leiöarljósi var Norrænu ráðherranefndinni faliö að móta áætlun um sjálfbæra þróun sem legði á- herslu á þau sviö þar sem Norðurlöndin eiga sam- eiginlega hagsmuni. í meginatriðum snýst áætlunin um aö í sex geirum veröi sjónarmiö umhverfisverndar og sjálf- bærrar þróunar innbyggð í alla stefnumótun. Þessir geirar eru orkumál, samgöngur, landbú- naður, atvinnulíf, sjávarútvegur og nýting skóga. Aðrir mikilvægir málaflokkar t.d. ferðamál, men- ntun, þéttbýlis- og húsnæöismál voru ekki tekin meö í þessari fyrstu norrænu áætlun um sjálfbæra þróun. í áætluninni er að finna tiltekin langtímamarkmiö til ársins 2020 og markmið og verkefni til ársins 2004 og er gert ráö fyrir aö árangurinn af eftirfylgni og framkvæmd veröi metinn aö fjórum árum liðnum. Ríkisstjórnir Noröurlandanna bera megin- ábyrgö á að fylgja markmiðum og verkefnum áætlunarinnar eftir. Þessi skýrsla gefur mjög gott yfirlit um stefnu opinberra aöila á Norðurlöndum í þessum mála- flokkum. Útgefandi er Norræna ráöherranefndin (www.norden.org) en skýrslan er fáanleg hér á landi hjá Máli og Menningu (verslun@mm.is). 72

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.