AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 78

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 78
svæði, og stóran hluta deili- og frágangsteikninga. Arkís ehf. sá um gerð allra útboðsgagna, verklýs- inga og kostnaðar- og magntalna, auk þjónustu við verkkaupa á verktíma. Þá hélt Arkís ehf. utan um alla útgáfu og samræmingu hönnunargagna er lutu að hverju verki, og var tengliður við aðalhönnuði Smáralindar, ASK arkitekta. Loks veitti Arkís ehf. aðstoð við verkeftirlit á byggin- garstað. Sú heildarþjónusta sem Arkís ehf. veitti í þessu tilviki er að nokkru leyti nýr vettvangur í starfi arki- tekta- og ráðgjafafyrirtækja. Hér færist útgáfa allra teikninga m.a. á einn aðila sem einnig sér um samræmingu gagna. Þetta tryggir aukin gæði og fækkar boðleiðum milli verkkaupa og hönnuða, sem eykur hagræði á verkferlinu. í samstarfi, þar sem fjöldi aðila, víða um heim, kemur að sama verkefni er netið ómissandi þáttur. Með notkun þess náðust í þessu tilviki skýr og auðveld boðskipti þvert á land og láð, auk þess sem öll afhending gagna var skráð og auðrekjan- leg. Mikil þróun hefur átt sér stað á þessu sviði innan fagsins síðustu árin, en fyrir nokkrum árum hefði verkferli sem þetta verið óframkvæmanlegt, þar sem samskipti hefðu reynst torveld og tíma- frek. Hér eru því ný markaðssvæði að opnast fyrir innlenda hönnuði sem geta í auknum mæli leitað á alþjóðlegan markað. Þá er fyrirsjáanlegt að slík þjónusta sem hér er lýst, muni færast meira á hendur arkitekta á komandi árum, einkum í Ijósi skýrra ákvæða byggingarreglugerðar frá 1998 um samræmingarhlutverk aðalhönnuðar. 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.