Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 8
8 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Góð og opinská samtöl
við hjúkrunarfræðinga
Fundaröð formanns og kjara- og réttindasviðs um landið
Á vormánuðum fóru formaður og starfsfólk kjara-
og réttindasviðs Fíh langþráða fundaröð um landið.
Tilgangur fundanna var að heyra í félagsmönnum
eftir veturinn og COVID- faraldurinn og einnig
að heyra hljóðið í hjúkrunarfræðingum varðandi
sumarorlofstímann sem var fram undan.
Á þessum fundum áttum við góð og opinská samtöl við
hjúkrunarfræðinga. Farið var yfir orlofskafla kjarasamninga,
hvernig mönnunin er á stofnunum, álagið og hvort hjúkrunar-
fræðingar fái lögbundið sumarfrí. Samhliða þessum heim-
sóknum var einnig fundað með stjórnendum stofnana.
Tekið var samtal um styttingu vinnuviku í dagvinnu og betri
vinnutíma í vaktavinnu en verkefnið hefur nú verið í gangi í
rúmt ár. Hlutverk Fíh í verkefninu er að fylgjast með og greina
framgang þess, sem og að eiga samtal við hjúkrunarfræðinga
og greina ávinning og vankanta, með þá þætti að leiðarljósi
sem gengið er út frá í verkefninu.
Farið var yfir hvernig komandi kjarasamningar leggjast í
hjúkrunarfræðinga ásamt samtali um aukagreiðslur sem
sumar stofnanir hafa gripið til í faraldrinum. Rætt var um
mönnunarviðmið hjúkrunarfræðinga, öryggismönnun, ábyrgð
þjónustunnar og bréf frá Fíh vegna starfa nema.
Sammála um að erfiðara sé að tryggja aðskilnað
vinnu og einkalífs
Fundirnir voru ólíkir en þó um margt samhljóða. Hjúkrunar-
fræðingar hafa staðið vaktina með sóma í gegnum erfið
tvö ár og eru þreyttir. Víða er ófremdarástand hvað varðar
starfsumhverfi sem er búið að ganga nærri mannauði
hjúkrunarfræðinga. Faraldurinn snerti alla hjúkrunarfræðinga
og þjóðin sá það skýrt að ekki hefði verið hægt að komast
í gegnum þetta jafnklakklaust, ef ekki hefði verið fyrir
þeirra óeigingjörnu störf. Sífellt erfiðara hefur verið fyrir
hjúkrunarfræðinga að tryggja aðskilnað vinnu og einkalífs
vegna mikils áreitis um að koma til vinnu utan þeirra
vinnuskyldu.
Hvað er til ráða?
Það er ýmislegt til ráða þó það muni reynast yfirvöldum
krefjandi verkefni að bjarga því ástandi sem varað hefur verið
við og er skollið á fyrr en búist var við. Hjúkrunarfræðingar
eru í auknum mæli að leita á önnur mið til þess að hafa
mannsæmandi laun og til að geta átt sitt einkalíf í friði. Nú
þarf að velja, á að reyna að halda í hjúkrunarfræðinga eða
á að keyra þá frekar út þar til það er enginn eftir á endanum
til að sinna þeim sem þarf að sinna? Mikilvægt er að sett
verði mönnunarviðmið og því sett takmörk hversu marga
sjúklinga hver og einn hjúkrunarfræðingur getur sinnt. Ef
launakjör og starfsumhverfi yrði bætt þá eru meiri líkur að
halda þeim hjúkrunarfræðingum sem eru við störf áfram
í starfi og jafnframt þá eru hjúkrunarfræðingar sem starfa
ekki sem slíkir í dag sem gætu hugsað sér að koma til starfa
ef þessir þættir væru bættir. Hjúkrunarfræðingar hafa
ekki samið um launakjör sín síðan 2011 og eru með tvo
gerðardóma í farteskinu. Það var algjör samhljómur þegar
hjúkrunarfræðingar voru spurðir hvað væri til ráða. Þeir vilja
aukna mönnun hjúkrunarfræðinga, endurmat á launakjörum
sinnar stóru kvennastéttar. Ásamt bættum aðbúnaði og því að
það þurfi ekki að berjast fyrir öllu til þess að hægt sé að veita
gæðaheilbrigðisþjónustu.
Kjara- og réttindasvið Fíh
Texti: Harpa Júlía Sævarsdóttir