Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 24
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Það er mikilvægt að fjölga körlum í hjúkrun.
Karlar og konur eiga að geta valið sér starfssvið
eftir áhuga og hæfileikum óháð staðalmyndum.
Kynskiptur vinnumarkaður orsakar meðal annars
kynbundinn launamun2. Þá hefur verið sýnt fram á að
vinnustaðamenning og framleiðni er almennt talin betri á
blönduðum vinnustöðum3. Um helmingur skjólstæðinga
hjúkrunarfræðinga eru karlar og því má segja að hlutfall
karla í hjúkrunarstéttinni sé í hrópandi ósamræmi
við heildarmyndina í nútímasamfélagi. Eðlilegt er
að kjölfestustarfsstétt eins og hjúkrunarfræðingar
endurspegli fjölbreytileika samfélagsins sem hún þjónar,
einnig hvað varðar kynjaskiptingu. Ef horft er til áskorana
hvað varðar mönnun í íslenskri heilbrigðisþjónustu
er ljóst að breyta þarf staðalmyndum þannig að karlar
sjái hjúkrunarfræði sem áhugaverða menntun og
framtíðarstarfsferil. Ólíklegt er að hægt verði að fylla
stöður hjúkrunarfræðinga með nær einu kyni á komandi
árum.
Árið 2019 hóf Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
(Fíh) samstarf við Hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands, Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri
og Landspítala um mótun framtíðarsýnar og
langtímastarfsáætlunar um fjölgun karla í hjúkrun.
Eitt af fyrstu verkefnum hópsins var að standa
fyrir könnun um karlkyns hjúkrunarfræðinga
annars vegar á meðal almennings og hins vegar á
meðal hjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga (Fíh).
Mikilvægt að fjölga
körlum í hjúkrun
Í alþjóðlegri rannsókn frá árinu 2012 „Male nurses World wide“ kom
fram að hlutfall karla sem störfuðu þá við hjúkrun á Íslandi var hvað
lægst í heiminum ásamt Kína eða um eitt prósent. Hlutfall karlkyns
hjúkrunarfræðinga í Evrópu var á sama tíma að meðaltali um 5-10%
og fór sú tala hækkandi, en sem dæmi þá voru 25% hjúkrunarfræðingar
á Ítalíu karlkyns1. Árið 2022 er hlutfall karlkyns hjúkrunarfræðinga
sem starfa við hjúkrun á Íslandi 3% samkvæmt félagatali Fíh. Hlutfallið
hefur hækkað á síðustu árum en ástæðan fyrir því er fjölgun karlkyns
hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna.
Í kjölfar þess að var ákveðið að halda rafrænt málþing
4. febrúar 2022 sem bar heitið Hjúkrun með
mismunandi kynjagleraugum, þar voru meðal annars
helstu niðurstöður könnunarinnar kynntar ásamt því að
boðið var upp á ýmsa aðra áhugaverða fyrirlestra.
Könnun Fíh um viðhorf til karlkyns
hjúkrunarfræðinga
Fyrirtækið Maskína sá um framkvæmd könnunarinnar
fyrir Fíh. Könnunin var tvískipt þar sem annars vegar
var leitast við var að skyggnast inn í viðhorf almennings
til karlkyns hjúkrunarfræðinga og hins vegar viðhorf
hjúkrunarfræðinga.
Könnunin sem náði til almennings var lögð fyrir Þjóðgátt
Maskínu, sem er þjóðhópur fólks á aldrinum 18 ára
og eldri sem valinn var með tilviljunarkenndum hætti
úr Þjóðskrá á netinu. Könnunin fór fram dagana 26.
október til 3. nóvember 2021 og voru svarendur alls 806
talsins.
Starfandi félagsmenn Fíh, alls 3.171 manns, fengu
könnunina senda til sín rafrænt dagana 2. til 30.
nóvember 2021 og henni var fylgt eftir með þremur
áminningum til þeirra sem ekki höfðu þegar svarað, auk
sms-skilaboða með vefslóð á könnunina. Að lokum var
haft samband símleiðis við þá hjúkrunarfræðinga sem
áttu eftir að svara. Alls svöruðu 1.358 félagsmenn Fíh
eða 42,8%. Stjórn Fíh vill þakka hjúkrunarfræðingum
fyrir þátttökuna en góð þátttaka er forsenda áreiðanlegra
niðurstaðna. Nánari útlistun á úrtaki og svörun í
könnuninni má sjá í töflu 1.
Höfundar: Edda Dröfn Daníelsdóttir, Eygló Ingadóttir, Gísli Kort Kristófersson, Gísli Nils Einarsson og Hildur Sigurðardóttir
Mikilvægt að fjölga körlum í hjúkrun