Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 29
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 29
Viðtal
eða sjálfstætt við að veita samtalsmeðferðir til
einstaklinga, hópa og fjölskyldna. Hjúkrunar-
fræðingar geta að loknu námi starfað á fjölbreyttum
vettvangi og haft afdrifarík áhrif til geðræktar og
góðrar geðheilsu þjóðarinnar.
Með hvaða hætti bætir þetta nám hugsanlega
geðþjónustu á Íslandi?
Hjúkrunarfræðingar sem hafa farið í gegnum
meistaranámið hafa einstaka þekkingu sem
brúar bilið, bæði milli notenda og þjónustu-
veitenda, sem og milli ólíkra fagstétta innan
geðheilbrigðisþjónustunnar. Geðhjúkrunarfræðingar
eru því ómissandi í þverfaglegu teymi því menntun
þeirra og hæfni gerir þá eftirsóknarverða málastjóra,
meginmeðferðaraðila eða teymisstjóra. Í náminu
verður lögð áhersla á klíníska þekkingu og færni,
fagmennsku, rannsóknarfærni og sjálfstæði svo
þeir sem útskrifast úr náminu geta í samvinnu
við notendur og aðstandendur veitt heildræna
geðhjúkrun. Þannig mun námið efla gæði og
auka framboð geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi til
framtíðar.
Hver er staða geðhjúkrunar á Íslandi í dag?
Að mínu mati hefur geðhjúkrun verið í lægð á Íslandi
undanfarin ár hvað varðar tækifæri til sérhæfingar og
hæfniþjálfunar með því móti sem þetta meistaranám
býður upp á. En þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa
við geðhjúkrun á Íslandi eru allajafna eldhugar og
vinna alveg hreint ótrúlega magnað starf á hverjum
degi sem oft fær ekki viðeigandi viðurkenningu.
Margir þeirra hafa svalað sínum fróðleiksþorsta með
því að fara á ráðstefnur og vinnustofur erlendis eða
hérlendis. Núna skapast tækifæri til menntunar og
klínískrar þjálfunar hér á landi, þessi meistaragráða
mun auka möguleika þeirra sem henni ljúka
til starfsþróunar og veitingu sérfræðiréttinda í
geðhjúkrun.
Hver er framtíðarsýn geðhjúkrunar?
Framtíðarsýnin að mati okkar sem höfum unnið að því að koma náminu af stað er
að innan nokkurra ára starfi geðhjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í geðhjúkrun
í mismunandi hlutverkum innan geðheilbrigðisþjónustu stofnana. Í til að mynda
geðheilsuteymum heilsugæslu eða grunnþjónustu heilsugæslu, í skólahjúkrun
og heimahjúkrun og annarri heilbrigðisþjónustu veittri í nærumhverfi.
Einnig að geðhjúkrunarfræðingar vinni við nýsköpun og rannsóknir tengdum
geðheilbrigðismálaflokknum.
Ef vel ætti að vera hvað vantar þá marga sérfræðinga í geðhjúkrun á
Íslandi?
Ég er þeirrar skoðunar að við sem samfélag séum stödd á þeim stað að
geðheilbrigði og efling þess verði viðfangsefni okkar til framtíðar. Ég á við að það
mun áfram verða þörf fyrir sérfræðinga í geðhjúkrun í allri heilbrigðisþjónustu
fyrir fólk með geðrænar áskoranir en ég tel að við eigum líka eftir að finna nýja
farvegi og leiðir til að sinna geðhjúkrun. Til dæmis sé ég fyrir mér að sérfræðingur
í geðhjúkrun geti starfað innan íþróttafélags þar sem viðfangsefnið væri
geðrækt þeirra sem æfa með félaginu. En til að gefa einhverja mynd þá var gerð
þarfagreining á geðþjónustu Landspítala og þar reiknast okkur til að það vanti
nú þegar til starfa 12 sérfræðinga í geðhjúkrun. Þá er hvorki talin þörf barna- og
unglingageðdeildar né annarra þjónustueininga spítalans. Svo það verða næg
tækifæri til framtíðar fyrir þá sem útskrifast úr meistaranáminu.
„ … það mun áfram vera
þörf fyrir sérfræðinga
í geðhjúkrun í allri
heilbrigðisþjónustu
fyrir fólk með geðrænar
áskoranir en ég tel að við
eigum líka eftir að finna
nýja farvegi og leiðir til að
sinna geðhjúkrun.“
Námsstjórn meistaranáms í geðhjúkrun, á myndina vantar Kristínu Lindu Hjartardóttur.