Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 29
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 29 Viðtal eða sjálfstætt við að veita samtalsmeðferðir til einstaklinga, hópa og fjölskyldna. Hjúkrunar- fræðingar geta að loknu námi starfað á fjölbreyttum vettvangi og haft afdrifarík áhrif til geðræktar og góðrar geðheilsu þjóðarinnar. Með hvaða hætti bætir þetta nám hugsanlega geðþjónustu á Íslandi? Hjúkrunarfræðingar sem hafa farið í gegnum meistaranámið hafa einstaka þekkingu sem brúar bilið, bæði milli notenda og þjónustu- veitenda, sem og milli ólíkra fagstétta innan geðheilbrigðisþjónustunnar. Geðhjúkrunarfræðingar eru því ómissandi í þverfaglegu teymi því menntun þeirra og hæfni gerir þá eftirsóknarverða málastjóra, meginmeðferðaraðila eða teymisstjóra. Í náminu verður lögð áhersla á klíníska þekkingu og færni, fagmennsku, rannsóknarfærni og sjálfstæði svo þeir sem útskrifast úr náminu geta í samvinnu við notendur og aðstandendur veitt heildræna geðhjúkrun. Þannig mun námið efla gæði og auka framboð geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi til framtíðar. Hver er staða geðhjúkrunar á Íslandi í dag? Að mínu mati hefur geðhjúkrun verið í lægð á Íslandi undanfarin ár hvað varðar tækifæri til sérhæfingar og hæfniþjálfunar með því móti sem þetta meistaranám býður upp á. En þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa við geðhjúkrun á Íslandi eru allajafna eldhugar og vinna alveg hreint ótrúlega magnað starf á hverjum degi sem oft fær ekki viðeigandi viðurkenningu. Margir þeirra hafa svalað sínum fróðleiksþorsta með því að fara á ráðstefnur og vinnustofur erlendis eða hérlendis. Núna skapast tækifæri til menntunar og klínískrar þjálfunar hér á landi, þessi meistaragráða mun auka möguleika þeirra sem henni ljúka til starfsþróunar og veitingu sérfræðiréttinda í geðhjúkrun. Hver er framtíðarsýn geðhjúkrunar? Framtíðarsýnin að mati okkar sem höfum unnið að því að koma náminu af stað er að innan nokkurra ára starfi geðhjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í geðhjúkrun í mismunandi hlutverkum innan geðheilbrigðisþjónustu stofnana. Í til að mynda geðheilsuteymum heilsugæslu eða grunnþjónustu heilsugæslu, í skólahjúkrun og heimahjúkrun og annarri heilbrigðisþjónustu veittri í nærumhverfi. Einnig að geðhjúkrunarfræðingar vinni við nýsköpun og rannsóknir tengdum geðheilbrigðismálaflokknum. Ef vel ætti að vera hvað vantar þá marga sérfræðinga í geðhjúkrun á Íslandi? Ég er þeirrar skoðunar að við sem samfélag séum stödd á þeim stað að geðheilbrigði og efling þess verði viðfangsefni okkar til framtíðar. Ég á við að það mun áfram verða þörf fyrir sérfræðinga í geðhjúkrun í allri heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir en ég tel að við eigum líka eftir að finna nýja farvegi og leiðir til að sinna geðhjúkrun. Til dæmis sé ég fyrir mér að sérfræðingur í geðhjúkrun geti starfað innan íþróttafélags þar sem viðfangsefnið væri geðrækt þeirra sem æfa með félaginu. En til að gefa einhverja mynd þá var gerð þarfagreining á geðþjónustu Landspítala og þar reiknast okkur til að það vanti nú þegar til starfa 12 sérfræðinga í geðhjúkrun. Þá er hvorki talin þörf barna- og unglingageðdeildar né annarra þjónustueininga spítalans. Svo það verða næg tækifæri til framtíðar fyrir þá sem útskrifast úr meistaranáminu. „ … það mun áfram vera þörf fyrir sérfræðinga í geðhjúkrun í allri heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir en ég tel að við eigum líka eftir að finna nýja farvegi og leiðir til að sinna geðhjúkrun.“ Námsstjórn meistaranáms í geðhjúkrun, á myndina vantar Kristínu Lindu Hjartardóttur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.