Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 31
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 31 ,,Við leggjum mikla áherslu á fjölskylduvinnu og erum í miklum samskiptum við fjölskyldur skjólstæðinga ef þeir veita okkur leyfi til þess.“ var búinn að fara yfir það helsta fyrir útskriftina og fór ég í kjölfarið aðeins yfir lyfjamálin með þeim. Ég óskaði þeim góðs gengis, skráði útskriftina og útskrifaði hann af deildinni. Klukkan 11 var ég að fara hitta fjölskyldu fyrir stuðning. Við leggjum mikla áherslu á fjölskylduvinnu og erum í miklum samskiptum við fjölskyldur skjólstæðinga ef þeir veita okkur leyfi til þess. Þetta var fyrsti stuðningurinn sem ég veitti þessari fjölskyldu og snérist hann aðallega um að kortleggja þann stuðning sem fjölskyldan þurfti mest á að halda og farið aðeins dýpra í þeirra hlutverki í kringum veikindi skjólstæðingsins. Eftir fundinn var komið að hádegismat, starfsfólk borðar að mestu í matsalnum með skjólstæðingum til að stuðla að frekari meðferðarsambandi. Það þarf samt alltaf að vera starfsmaður á ganginum ef eitthvað kemur upp á og vera til taks ef skjólstæðingar þurfa aðstoð. Eftir matartímann talaði ég við einn skjólstæðing sem er skráður á forðasprautu. Ég vissi að sjá aðili vildi fá Vaktin mín sprautuna sem fyrst þannig ég lét hann vita af sprautunni áður en ég gerði hana tilbúna. Helstu forðasprautur sem eru notaðar heita Trilafon, Xeplion og Zypadhera. Á þessum degi vorum við að nota Xeplion og Zypadhera. Þegar forðasprautur eru gefnar þarf að fylgjast vel með lífsmörkum og almennri líðan skjólstæðings, sérstaklega varðandi Zypadhera. Tekin eru lífsmörk fyrir og eftir gjöf og svo er eftirlit í þrjár klukkustundir eftir gjöf. Forðaspauta er tegund geðrofslyfja, hún hentar sumum Ólafur Haukur, Faith Igcalinos Tao, Katrín og Jóna Kolbrún. betur heldur en að taka lyf um munn og þjónar sama tilgangi. Sprautan er gefin á tveggja til fjögurra vikna fresti og á þeim tíma heldur hún styrkleika lyfsins í líkamanum jöfnum. Ég fór að undirbúa forðasprautuna en þar sem það voru fleiri skjólstæðingar skráðir á sprautu þennan morgun var ég búin að fá annan hjúkrunarfræðing til þess að aðstoða mig. Sprautan sem ég var að undirbúa var Zypadhera og getur tekið smátíma að undirbúa hana vegna margra skrefa sem þarf að fylgja til að blanda lyfið. Svo fór ég yfir þá verkferla sem þarf að sinna fyrir og eftir gjöf Zypadhera og gaf sprautuna. Vaktstjóri lét mig vita að það væri fyrirhuguð innlögn og bað mig um að sjá um hana. Innlagnir koma aðallega frá bráðamóttöku geðsviðs en geta einnig komið frá öðrum deildum eða teymum sem vinna á göngudeild Kleppsspítala. Búið var að gera herbergið klárt og ég fór að undirbúa móttökublaðið og talaði við ráðgjafa sem gat verið með mér að taka á móti skjólstæðingnum. Klukkan var að ganga í 14 þegar skjólstæðingurinn kom, ég fylgi honum inn á herbergi og tók innskriftarviðtal við hann. Það var stutt þar sem skjólstæðingurinn var að koma í bráðainnlögn, ég fékk helstu upplýsingar og tók lífsmörk. Innskriftaviðtalið þróaðist út í stuðningsviðtal en við leggjum mikla áherslu á stuðning á deildinni og fara allir starfsmenn hennar á námskeið til þess að geta veitt stuðningsviðtal. Ég innskrifaði skjólstæðinginn og skráði í Söguna það helsta sem þyrfti að koma fram og skráði niður teymi í kringum skjólstæðinginn. Í teymi hjá skjólstæðingum í bráðafasa er ábyrgur læknir og hjúkrunarfræðingur. Ráðgjafi aðstoðaði skjólstæðinginn við að koma sér vel fyrir inni á herbergi og sýndi honum deildina. Ég er skráð sem málastjóri hjá einum skjólstæðingi í endurhæfingu. Því fylgir að ég aðstoða hann í gegnum endurhæfingu og skipulegg hana eftir óskum skjólstæðingsins. Endurhæfingin hefur gengið vel og er hann kominn í útskriftarfasa. Ákveðið var að undirbúa þrepaplan sem deildin gæti haft til hliðsjónar, sem skipulag fyrir komandi útskrift. Ég fór í það að undirbúa þrepaplanið. Það styttist í lok vaktarinnar, ég fer yfir daginn; hvort ég eigi eftir að klára einhver verkefni eða ganga frá svo ég skili morgunvaktinni almennilega frá mér. Ég skrái í Sögukerfið það helsta í kringum mína skjólstæðinga og hnýtti lausa enda. Vaktstjórinn bað mig um að halda rapportið fyrir kvöldvaktina sem ég gerði og ég endaði á því að þakka öllum sem voru á vaktinni fyrir góða vakt, það finnst mér mikilvægt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.