Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 31
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 31
,,Við leggjum mikla áherslu á fjölskylduvinnu
og erum í miklum samskiptum við fjölskyldur
skjólstæðinga ef þeir veita okkur leyfi til þess.“
var búinn að fara yfir það helsta fyrir útskriftina og fór
ég í kjölfarið aðeins yfir lyfjamálin með þeim. Ég óskaði
þeim góðs gengis, skráði útskriftina og útskrifaði hann af
deildinni.
Klukkan 11 var ég að fara hitta fjölskyldu fyrir stuðning.
Við leggjum mikla áherslu á fjölskylduvinnu og erum í
miklum samskiptum við fjölskyldur skjólstæðinga ef þeir
veita okkur leyfi til þess. Þetta var fyrsti stuðningurinn
sem ég veitti þessari fjölskyldu og snérist hann aðallega
um að kortleggja þann stuðning sem fjölskyldan þurfti
mest á að halda og farið aðeins dýpra í þeirra hlutverki í
kringum veikindi skjólstæðingsins.
Eftir fundinn var komið að hádegismat, starfsfólk borðar
að mestu í matsalnum með skjólstæðingum til að stuðla
að frekari meðferðarsambandi. Það þarf samt alltaf að
vera starfsmaður á ganginum ef eitthvað kemur upp á og
vera til taks ef skjólstæðingar þurfa aðstoð.
Eftir matartímann talaði ég við einn skjólstæðing sem
er skráður á forðasprautu. Ég vissi að sjá aðili vildi fá
Vaktin mín
sprautuna sem fyrst þannig ég lét hann vita af sprautunni
áður en ég gerði hana tilbúna. Helstu forðasprautur sem
eru notaðar heita Trilafon, Xeplion og Zypadhera. Á
þessum degi vorum við að nota Xeplion og Zypadhera.
Þegar forðasprautur eru gefnar þarf að fylgjast vel með
lífsmörkum og almennri líðan skjólstæðings, sérstaklega
varðandi Zypadhera. Tekin eru lífsmörk fyrir og eftir
gjöf og svo er eftirlit í þrjár klukkustundir eftir gjöf.
Forðaspauta er tegund geðrofslyfja, hún hentar sumum
Ólafur Haukur, Faith Igcalinos
Tao, Katrín og Jóna Kolbrún.
betur heldur en að taka lyf um munn og þjónar sama
tilgangi. Sprautan er gefin á tveggja til fjögurra vikna
fresti og á þeim tíma heldur hún styrkleika lyfsins í
líkamanum jöfnum.
Ég fór að undirbúa forðasprautuna en þar sem það voru
fleiri skjólstæðingar skráðir á sprautu þennan morgun var
ég búin að fá annan hjúkrunarfræðing til þess að aðstoða
mig. Sprautan sem ég var að undirbúa var Zypadhera
og getur tekið smátíma að undirbúa hana vegna margra
skrefa sem þarf að fylgja til að blanda lyfið. Svo fór ég
yfir þá verkferla sem þarf að sinna fyrir og eftir gjöf
Zypadhera og gaf sprautuna.
Vaktstjóri lét mig vita að það væri fyrirhuguð
innlögn og bað mig um að sjá um hana. Innlagnir
koma aðallega frá bráðamóttöku geðsviðs en geta
einnig komið frá öðrum deildum eða teymum
sem vinna á göngudeild Kleppsspítala. Búið var
að gera herbergið klárt og ég fór að undirbúa
móttökublaðið og talaði við ráðgjafa sem gat verið
með mér að taka á móti skjólstæðingnum.
Klukkan var að ganga í 14 þegar skjólstæðingurinn kom,
ég fylgi honum inn á herbergi og tók innskriftarviðtal
við hann. Það var stutt þar sem skjólstæðingurinn var að
koma í bráðainnlögn, ég fékk helstu upplýsingar og tók
lífsmörk. Innskriftaviðtalið þróaðist út í stuðningsviðtal
en við leggjum mikla áherslu á stuðning á deildinni og
fara allir starfsmenn hennar á námskeið til þess að geta
veitt stuðningsviðtal.
Ég innskrifaði skjólstæðinginn og skráði í Söguna það
helsta sem þyrfti að koma fram og skráði niður teymi í
kringum skjólstæðinginn. Í teymi hjá skjólstæðingum
í bráðafasa er ábyrgur læknir og hjúkrunarfræðingur.
Ráðgjafi aðstoðaði skjólstæðinginn við að koma sér vel
fyrir inni á herbergi og sýndi honum deildina.
Ég er skráð sem málastjóri hjá einum skjólstæðingi
í endurhæfingu. Því fylgir að ég aðstoða hann í
gegnum endurhæfingu og skipulegg hana eftir óskum
skjólstæðingsins. Endurhæfingin hefur gengið vel og er
hann kominn í útskriftarfasa. Ákveðið var að undirbúa
þrepaplan sem deildin gæti haft til hliðsjónar, sem
skipulag fyrir komandi útskrift. Ég fór í það að undirbúa
þrepaplanið.
Það styttist í lok vaktarinnar, ég fer yfir daginn; hvort
ég eigi eftir að klára einhver verkefni eða ganga frá svo
ég skili morgunvaktinni almennilega frá mér. Ég skrái í
Sögukerfið það helsta í kringum mína skjólstæðinga og
hnýtti lausa enda.
Vaktstjórinn bað mig um að halda rapportið fyrir
kvöldvaktina sem ég gerði og ég endaði á því að
þakka öllum sem voru á vaktinni fyrir góða vakt,
það finnst mér mikilvægt.