Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 48
48 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
hafi hingað til fremur verið beint að líðan þeirra sem missa
vinnuna á krepputímum, en hinna sem eru í starfi.
Þessi rannsókn, sem fjallar um þróun líðanar og veikinda-
fjarvista starfsfólks sem hefur sinnt umönnunarstörfum hjá
íslenskum sveitarfélögum í kjölfar efnahagskreppunnar á
Íslandi 2008 er innlegg í þá umræðu. Rannsóknin er ekki
síst mikilvæg nú þegar við stöndum frammi fyrir djúpri
efnahagskreppu vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á
efnahagslífið. Það að rannsaka líðan starfsfólks sveitarfélaga
á krepputímum er mikilvægt því sveitarfélögin eru stór
vinnuveitandi sem gegnir veigamiklu hlutverki í samfélaginu
vegna lögbundinnar þjónustu sem þau veita. Starfsfólk
sveitarfélaganna er í miklu samneyti við fjölskyldur landsins
og líðan þess getur verið ákveðin vísbending um líðan
þjóðarinnar.
Tilgangur rannsóknarinnar er því að skoða líðan; nánar tiltekið
þróun andlegra og líkamlegra heilsufarseinkenna, vinnuálags
og veikindafjarvista starfsfólks í umönnunarstörfum hjá 12
íslenskum sveitarfélögum í kjölfar efnahagskreppunnar 2008,
en niðurskurður fór fyrst að hafa veruleg áhrif á sveitarfélögin
u.þ.b. tveimur árum eftir fall bankanna eða árið 2010. Það
var ekki fyrr en árið 2015 sem hagur þeirra batnaði á ný
(Hagstofa Íslands e.d.a). Þátttakendur voru beðnir að svara
spurningunum árin 2010, 2011, 2013, 2015 og 2019 með tilliti
til þess hvernig þeir hefðu upplifað tiltekna heilsufarsþætti í 12
mánuði áður en spurningalistinn var lagður fyrir.
Heilsufarsþættirnir sem voru til skoðunar eru:
a) Verið frá vinnu vegna veikinda.
b) Mætt veik/ur til vinnu, vegna álags í vinnunni.
c) Leitað til læknis vegna veikinda/heilsubrests sem rekja
má til aðstæðna í vinnunni.
d) Breyting á sjálfmetinni andlegri og líkamlegri heilsu.
e) Einkenni og verkir sem höfðu truflað daglegt líf.
Einnig var skoðað hvort bakgrunnsþættirnir kyn, aldur, upp-
sagnir og álag á vinnustaðnum hefðu tengsl við áðurnefnd
atriði.
Nýnæmi rannsóknarinnar felst í því að hún varpar ljósi á
þróun líðanar starfsfólks í umönnunarstörfum á Íslandi í
rúman áratug eftir efnahagskreppuna 2008. Rannsóknin er
framlag til fræðilegrar og hagnýtrar þekkingar á vinnutengdri
líðan í kjölfar efnahagskreppa, en þá þekkingu má nota
til að skipuleggja uppbyggingu á heilsutengdum frum- og
síðforvörnum í tengslum við starfsmannaheilsuvernd
og hjúkrun. Slíkt er ávallt mikilvægt, en ekki síst nú í
ljósi efnahagskreppunnar sem fram undan er vegna
kórónuveirufaraldursins.
Sérstaða rannsóknarinnar er að hún er megindleg langtíma-
panel-rannsókn. Sömu spurningarnar voru lagðar fyrir
starfsfólk í umönnunarstörfum á öldrunarstofnunum
og sambýlum fyrir fatlaða og geðfatlaða hjá íslenskum
AÐFERÐ
Veikindi og veikindafjarvistir starfsfólks í umönnunarstörfum
sveitarfélögum í fimm skipti, eða árin 2010, 2011, 2013,
2015 og 2019. Sömu einstaklingum var fylgt eftir á þessu
tímabili og þannig hægt að sjá þróun svara, óháð því hvernig
annað (nýtt) starfsfólk svaraði spurningunum. Fyllstu
persónuverndarsjónarmiða var gætt og var rannsóknin
samþykkt af Vísindasiðanefnd (VSN 10-007) og tilkynnt til
Persónuverndar (S4634/2010).
Þátttakendur og framkvæmd
Þátttakendur í rannsókninni komu frá 12 sveitarfélögum
(fjórir af höfuðborgarsvæðinu og átta af landsbyggðinni).
Mannauðsstjórar sveitarfélaganna afhentu netföng alls
starfsfólks sem var í umönnunarstörfum hjá sveitarfélaginu
á hverjum tímapunkti fyrir sig. Beiðni um þátttöku var send
í tölvupósti til 268 manns í umönnunarstörfum í upphafi árs
2010, á vordögum 2011, í upphafi árs 2013 og á haustdögum
2015 og 2019. Starfsfólkið samþykkti þátttöku með því að
opna tengil með spurningalistanum sem fylgdi tölvupóstinum.
Spurningalistinn var fylltur út og sendur inn nafnlaust. Aftast
í spurningalistanum voru hins vegar fjórar spurningar sem
saman mynduðu ópersónugreinanlegan kóða fyrir hvern
einstakling, sem enginn þekkir nema viðkomandi. Sá kóði
var síðan notaður til að para saman þátttakendur á milli
fyrirlagna, svo unnt væri að fylgjast með þróun svaranna.
Alls 108 einstaklingar í umönnunarstörfum svöruðu
spurningalistanum í öll fimm skiptin og gáfu upp kóðann
til að para saman svörin, eða 38% af upphaflegum fjölda
þátttakenda. Af þeim voru 84,3% konur og 15,7% karlar sem
endurspeglar vel hlutfall kynjanna á þessum vinnustöðum.
Af persónuverndarástæðum var ekki spurt um starfsstétt
viðkomandi og því er ekki gerður greinarmunur á því hvort
þátttakandinn var hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði, ófaglærður
eða faglærður starfsmaður sem sinnti umönnun íbúa á
viðkomandi stofnunum. Meðalaldur þátttakenda var 50,5 ár
miðað við árið 2019, tæp 48 ár hjá körlum og rúm 51 ár hjá
konum. Hafa ber í huga að 38% þátttakenda af upprunalegu
þýði telst gott þar sem rannsóknin hefur staðið yfir í níu ár
og því eðlilegt að einhver hluti starfsfólksins hafi hætt á
tímabilinu, farið á eftirlaun eða skipt um starfsvettvang. Einnig
er möguleiki að einhver hluti hafi ekki gefið upp kóðann til að
para saman gögnin í einhverri fyrirlögninni.
Þrátt fyrir að fjöldi þeirra sem rannsakaðir voru minnki til
muna við það að vinna einvörðungu með pöruð gögn, þá lítum
við svo á að það sé mikilvægt að vinna með pörun í rannsókn
sem þessari, svo hægt sé með vissu að fjalla um þróun líðanar
hjá sömu einstaklingum yfir tímabilið.
Mælitæki
Í rannsókninni var stuðst við spurningar frá Embætti
landlæknis úr rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga
(Lýðheilsustöð, e.d.) og úr Norræna spurningalistanum
um sálfélagslega þætti í vinnunni (Lindström o.fl., 2000) í
þýðingu Hólmfríðar K. Gunnarsdóttur. Svarendur mátu sjálfir
andlega og líkamlega heilsu sína síðastliðna 12 mánuði á
hverjum tímapunkti í rannsókninni, eða í fimm skipti. Það
gerðu þeir með því að svara spurningum um andlega og
líkamlega líðan sína. Þó svo að það að byggja á sjálfmetinni
heilsu í rannsóknum hafi sætt gagnrýni fyrir að vera of
huglæg nálgun, þar sem um svör við spurningalista er að
ræða en ekki læknisskoðun með heilsufarsmælingum eða
skráðar heilsufarsupplýsingar, þá hefur verið sýnt fram á að