Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 49
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 49 Ritrýnd grein | Peer review Tafla 1 sýnir hlutfallstölur fyrir dagafjölda frá vinnu vegna veikinda, í vinnu þrátt fyrir veikindi og skipti sem leitað var til læknis vegna veikinda sem rekja má til aðstæðna í vinnunni árin 2010-2019. Ef horft er á þau sem hafa aldrei verið frá vinnu vegna veikinda sést að þeim fækkar við fyrstu þrjár fyrirlagnirnar sem bendir til aukinna veikinda. Munurinn á hlutfalli þeirra sem höfðu verið frá vinnu vegna veikinda á síðustu tólf mánuðum og þeirra sem höfðu aldrei verið frá vinnu reyndist þó ekki marktækur (χ2 (4, 108) = 2,29, p = 0,68). Einnig má sjá að hlutfallslega fleiri höfðu einhvern tímann mætt veikir til vinnu vegna álags í síðari fyrirlögnum spurningalistans en þeirri fyrstu og reyndist munurinn á milli fyrirlagna marktækur (χ2 (4, 108) = 16,31, p < 0,05). Tilhneigingin er sú að aukning varð fram til ársins 2013 á hlutfalli þeirra sem segjast hafa mætt veikir til vinnu vegna álags, en þeim fer svo aftur fækkandi. Algengi þess að hafa leitað til læknis vegna veikinda/heilsubrests sem rekja má til aðstæðna í vinnunni síðustu tólf mánuði jókst stöðugt á rannsóknartímanum, fór úr tæpum 14% árið 2010 í rúm 33% árið 2019 (χ2 (4, 108) = 18,15, p < 0,05). NIÐURSTÖÐUR slíkar upplýsingar geta verið góður mælikvarði á andlega og líkamlega heilsu fólks (Crossley og Kennedy, 2002; Ferrie o.fl., 2005; Forsberg, 2020; Voss o.fl., 2008). Veikindi og veikindafjarvistir voru mæld með spurningunum: (1) Hve marga daga, ef einhverja, hefur þú verið frá vinnu vegna veikinda á síðustu 12 mánuðum? Svarmöguleikar voru fjórir; „aldrei“, „1-7 daga“, „8-14 daga“ og „meira en14 daga“. (2) Hefur þú mætt veik(ur) í vinnu vegna álags á síðustu 12 mánuðum? Svarmöguleikar voru fjórir; „aldrei“, „1-3 sinnum“, „4-6 sinnum“ og „oftar en 6 sinnum“. (3) Hefur þú leitað til læknis vegna veikinda/heilsubrests sem þú rekur til aðstæðna í vinnunni síðastliðna 12 mánuði? Svarmöguleikar voru tveir; „já“ og „nei“. Andleg og líkamleg heilsa var metin með tveimur spurningum: (1) Hvernig metur þú andlega heilsu þína nú miðað við fyrir einu ári síðan? (2) Hvernig metur þú líkamlega heilsu þína nú miðað við fyrir einu ári síðan? Svarmöguleikar voru fimm; „mikið betri nú en fyrir einu ári“, „nokkru betri nú en fyrir einu ári“, „nokkurn veginn eins og fyrir einu ári“, „nokkru verri nú en fyrir einu ári“ og „miklu verri nú en fyrir einu ári“. Einkenni og verkir voru metnir með spurningunni: Hefur eitthvað af eftirfarandi einkennum eða verkjum truflað daglegt líf þitt; þrekleysi, vöðvabólga, verkir í baki/herðum, tíðir höfuðverkir, verkir í kvið, andþyngsli, svefnerfiðleikar, þungar áhyggjur, kvíði, depurð, hjartsláttartruflanir, hækkaður blóðþrýstingur, ristilkrampi eða kvef/umgangspestir? Svarmöguleikarnir voru; „já“ eða „nei“ við hverjum lið fyrir sig. Bakgrunnsbreytur í þessari greiningu voru kyn (kona/ karl), aldur (aldur í árum miðað við árið 2019), uppsagnir á vinnustað (engar uppsagnir/uppsagnir) og vinnuálag (lítið vinnuálag/mikið vinnuálag). Tafla 1. Hlutfallstölur fyrir veikindi og veikindafjarvistir hjá starfsfólki í umönnunarstöfum hjá sveitarfélögum 2010, 2011, 2013, 2015 og 2019 Fyrirlögn 2010 % Fyrirlögn 2011 % Fyrirlögn 2013 % Fyrirlögn 2015 % Fyrirlögn 2019 % Hve marga daga, ef einhverja, hefur þú verið frá vinnu vegna veikinda á síðustu 12 mánuðum? Aldrei 17,6 13,9 12,0 16,7 13,9 1-7 daga 54,6 55,6 63,0 41,7 45,3 8-14 daga 17,6 15,7 13,0 31,4 31,5 >14 daga 10,2 14,8 12,0 10,2 9,3 Hefur þú mætt veik(ur) í vinnu vegna álags á síðustu 12 mánuðum? Aldrei 44,4 24,1 28,7 35,2 34,3 1-3 sinnum 40,7 54,6 50,9 48,1 45,3 4-6 sinnum 11,1 13,0 11,1 10,2 16,7 > 6 sinnum 3,8 8,3 9,3 6,5 3,7 Hefur þú leitað til læknis vegna veikinda/heilsubrests sem þú rekur til aðstæðna í vinnunni síðastliðna 12 mánuði? Já 13,9 26,9 24,1 32,4 33,3 Nei 86,1 73,1 75,9 67,6 66,7 Gagnagreining Cochrans Q-próf fyrir endurteknar mælingar var notað til að skoða áhrif tíma á veikindafjarvistir, að mæta veikur í vinnu, læknisheimsóknir, sjálfsmetna andlega og líkamlega heilsu, einkenni og verki. Með endurteknum mælingum er átt við að sömu einstaklingarnir svara sömu spurningunum á fimm mismunandi tímapunktum og tölfræðiprófið tekur tillit til þess að verið er að spyrja sömu einstaklingana aftur og aftur. Dreifigreining fyrir endurteknar mælingar var notuð til að skoða hvort breytingar á meðalfjölda andlegra og líkamlegra einkenna væru háðar kyni, aldri, uppsögnum á vinnustað og álagi. Marktæknikrafa var sett við öryggismörkin 0,05. Tölfræðiforritið SPSS 26.0 var notað til að greina gögnin.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.