Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 56
Hagkvæmni og árangur skipta miklu máli í heil-
brigðisþjónustu. Skýr verksvið og góð samvinna
heilbrigðisstarfsmanna getur haft góð áhrif á hvort tveggja,
bætt starfsumhverfi og dregið úr starfsmannaveltu. Erlendar
rannsóknir benda til þess að hjúkrunarfræðingar hafi önnur
og jákvæðari viðhorf til faglegrar samvinnu en læknar og
stundum er ágreiningur milli fagstéttanna um hlutverk.
Markmið rannsóknarinnar var að greina þau viðhorf sem
ríkja til faglegrar samvinnu, hlutverka og ábyrgðar meðal
svæfingalækna og svæfingahjúkrunarfræðinga á Íslandi.
Lýsandi samanburðarrannsókn. Í mars 2020 var
send rafræn könnun til allra meðlima í Fagdeild
svæfingahjúkrunarfræðinga (N = 115) og Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélagi Íslands (N = 53). Til að mæla viðhorf
til faglegrar samvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga var
notast við Jefferson-mælitækið (heildarstig 15-60, fleiri stig
benda til jákvæðara viðhorfs). Einnig var spurt um hlutverk
og starfssvið svæfingahjúkrunarfræðinga. Notuð var lýsandi
tölfræði og meðaltöl hópanna borin saman með t-prófi.
Svarhlutfall var 56,0% (n = 94). Viðhorf svæfinga-
hjúkrunarfræðinga til samvinnu (M = 53,5 ± 3,1) voru
jákvæðari en viðhorf svæfingalækna (M = 47,6 ± 5,6)
(p < 0,001). Tæplega helmingi þátttakenda fannst hlutverk
svæfingahjúkrunarfræðinga á Íslandi ekki vel skilgreint
og skýrt og 72,3% svæfingalækna voru sammála um
að meginhlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga væri
að framfylgja fyrirmælum svæfingalækna. Hlutfall
svæfingalækna sem taldi að læknar ættu að hafa ráðandi
vald í öllum heilbrigðismálum var tífalt hærra en hlutfall
svæfingahjúkrunarfræðinga sem voru þessarar skoðunar.
Viðhorf til samvinnu í svæfingaþjónustu á Íslandi
eru jákvæð. Viðhorf lækna til ráðandi valds og
óljóst hlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga er þó
áhyggjuefni. Þörf er á að móta ábyrgðar- og starfssvið
svæfingahjúkrunarfræðinga út frá hæfniviðmiðum,
til að bæta gæði heilbrigðisþjónustu og auka
starfsánægju.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Svæfingahjúkrunarfræðingur; svæfingalæknir;
samvinna; viðhorf; Jefferson mælitækið.
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Viðhorf sem ríkja til samvinnu meðal
svæfingahjúkrunarfræðinga og svæfingalækna á
Íslandi hafa ekki verið rannsökuð áður.
Hagnýting: Aukin þekking á viðhorfum
til faglegrar samvinnu í svæfingaþjónustu
og hvernig fagaðilar upplifa hlutverk og
ábyrgðarskiptingu, getur nýst til að styrkja enn
frekar góða samvinnu fagstéttanna og við að
skilgreina starfssvið svæfingahjúkrunarfræðinga
út frá hæfniviðmiðum og gæðastöðlum.
Þekking: Rannsóknin eykur þekkingu á þeim
viðhorfum sem ríkja til samvinnu, hlutverka og
ábyrgðar í svæfingaþjónustu á Íslandi.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Niðurstöður rannsóknarinnar geta hvatt
til umræðu um ábyrgðar- og starfssvið
svæfingahjúkrunarfræðinga, eflt enn
frekar sterka fagstétt og góða teymisvinnu
á skurðstofum og þannig dregið úr
hlutverkatogstreitu í daglegum störfum í
svæfingaþjónustu.
Viðhorf til faglegrar samvinnu
í svæfingaþjónustu á Íslandi
Ritrýnd grein | Peer review