Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 59
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 59
meðaltöl og staðalfrávik. Flokkabreytur voru bornar saman
með Fishers-prófi. Niðurstöður mælitækisins voru dregnar
saman sem meðaltöl fyrir hvorn hóp fyrir sig og einstakar
spurningar, þemu og heildarstig borin saman með ópöruðu
Welch t-prófi, sem tekur tillit til ólíkrar stærðar hópa. Við
frekari samanburð á svörum voru þeir sem svöruðu frekar
ósammála eða mjög ósammála sagðir ósammála fullyrðingu,
en þeir sem svöruðu frekar sammála eða mjög sammála
sagðir sammála fullyrðingu. Innri áreiðanleiki íslensku
þýðingarinnar var metinn með alfastuðli og reyndist hann vera
0,75. Marktækni var skilgreind sem p < 0,05.
Ritrýnd grein | Peer review
Svarhlutfall var 56,0% (n = 94). Fullnægjandi svörun á
Jefferson-mælitækið fékkst frá 86 þátttakendum. Áttatíu
NIÐURSTÖÐUR
Tafla 1. Bakgrunnur þátttakenda
Tafla 2. Meðalstigafjöldi hópanna í hverju þema mælitækisins og heildarstigafjöldi
Svæfingahjúkrunarfræðingar
n = 61
Svæfingalæknar
n = 19
(%) (%) p-gildi
Kyn
Karl 6,6 79,0 < 0,001
Kona 91,8 21,0
Svaraði ekki 1,6 0,0
Starfsaldur
≤ 10 ár 44,3 5,3 0,002
11-20 ár 27,9 36,8
> 20 ár 22,9 52,6
Svaraði ekki 4,9 5,3
Menntunarstig
Bakkalárgráða 77,0 10,5 < 0,001
Meistaragráða 16,4 26,3
Doktorsgráða 0,0 21,1
Svaraði ekki 6,6 42,1
Starfshlutfall
Ekki starfandi 11,5 0,0 < 0,001
< 50% 8,2 10,5
51-80% 50,8 0,0
81-100% 24,6 89,5
Svaraði ekki 4,9 0,0
Svæfingahjúkrunarfræðingar
M ± sf
Svæfingalæknar
M ± sf p-gildi
Sameiginleg menntun og samskipti í starfi 24,5 ± 2,1 22,7 ± 3,1 0,007
Umönnun eða lækning 11,0 ± 0,9 9,6 ± 1,3 < 0,001
Sjálfstæði hjúkrunarfræðings 11,4 ± 0,8 10,8 ± 1,1 0,013
Vald læknis* 6,6 ± 1,2 4,4 ± 1,2 < 0,001
Heildarstig 53,5 ± 3,1 47,6 ± 5,6 < 0,001
þátttakendur tilgreindu starfsgrein og voru 76,2% þeirra
svæfingahjúkrunarfræðingar og 23,8% svæfingalæknar.
Mikill meirihluti svæfingahjúkrunarfræðinga voru konur
en meirihluti svæfingalækna karlar (p < 0,001). Meðalaldur
svæfingahjúkrunarfræðinga var þremur árum lægri en
meðalaldur svæfingalækna (p = 0,367) og starfsaldur var
rúmlega átta árum lægri (p = 0,016). Frekari lýðfræðilegar
upplýsingar um þátttakendur má sjá í töflu 1.
Í töflu 2 sést að meðaltal heildarstiga svæfingahjúkrunar-
fræðinga er hærra (M = 53,5 ± 3,1) en meðaltal heildar-
stiga svæfingalækna (M = 47,6 ± 5,6) (p < 0,001).
Samkvæmt Jefferson-mælitækinu teljast því viðhorf til
faglegrar samvinnu þessara starfstétta jákvæðari í hópi
svæfingahjúkrunarfræðinga en í hópi svæfingalækna. Meðal
stigafjöldi fyrrnefnda hópsins var einnig marktækt hærri í
öllum fjórum þemum mælitækisins. Heildarstig þátttakenda
sem ekki gáfu upp starfsgrein voru að meðaltali 51,5 ± 3,7
og skáru þeir sig ekki frá þeim sem tilgreindu starfsgrein (p =
0,524). Í töflu 3 er gerð grein fyrir meðal stigafjölda fyrir hverja
fullyrðingu fyrir sig og sýnd p-gildi fyrir mun milli starfsstétta.
Fleiri stig benda til jákvæðara viðhorfs til faglegrar samvinnu.
*Stigagjöf er snúið við í þessum fullyrðingum og benda því fleiri stig til jákvæðara viðhorfs til samvinnu og höfnunar á því að
læknar eigi að fara með ráðandi vald.