Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 66
Ákveðið hlutfall starfsfólks á geðdeildum verður
fyrir ofbeldi við störf sín. Fyrir flesta sem verða fyrir
ofbeldi hefur það einhver áhrif. Þessi rannsókn
sýnir umfang þessa vandamáls í geðþjónustu
Landspítala.
Rafrænn spurningalisti var sendur á netföng
starfsfólks úr öllum starfsstéttum geðþjónustu
Landspítala. Spurt var um hvort það hefði orðið fyrir
ofbeldi síðustu 12 mánuði, hverjir voru gerendur og
þolendur ofbeldis, hverjar afleiðingarnar ofbeldið
hafði strax eða skömmu á eftir og hvernig því liði
í vinnunni. Lýðheilsufræðilegar upplýsingar voru
einnig fengnar um þátttakendur og reiknuð út
tengsl þeirra við önnur svör í rannsókninni.
Alls svöruðu 226 starfsmenn spurningalistanum eða
36,1% þeirra sem starfaði í geðþjónustu Landspítala
á þessum tíma. 23,5% þátttakenda sögðust hafa
orðið fyrir líkamlegu ofbeldi síðustu 12 mánuði,
60,4% fyrir munnlegu ofbeldi og 18,9% fyrir
kynferðislegu ofbeldi. Skýrt verður einnig frá öðrum
niðurstöðum í greininni.
Niðurstöðurnar sýna að ákveðið hlutfall starfsfólks
í geðþjónustu Landspítala verður fyrir ofbeldi við
störf sín eins og starfsfólk á geðdeildum erlendis.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð við ofbeldi eru
mikilvægir og nauðsynlegir þættir í vinnuumhverfi
geðdeilda.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Hér er um fyrstu birtu rannsókn
um ofbeldi gagnvart starfsfólki geðdeilda
Landspítala að ræða.
Hagnýting: Niðurstöðurnar sýna hvaða
starfsstéttir á geðdeildum verða oftast fyrir
ofbeldi.
Þekking: Rannsóknin sýnir svipaðar niðurstöður
og sambærilegar rannsóknir frá öðrum löndum.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Ofbeldi og árásargjörn hegðun er íþyngjandi fyrir
hjúkrunarfræðinga við störf sín. Niðurstöðurnar
sýna að hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk
á geðdeildum þurfa leiðsögn og stuðning til
að takast á við krefjandi viðfangsefni eins og
ofbeldi.
Ritrýnd grein | Peer review
Ofbeldi gagnvart starfsfólki
geðdeilda Landspítala
Lykilorð:
Ofbeldi, gerendur og þolendur ofbeldis,
afleiðingar ofbeldis, líðan í starfi