Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 67
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 67
Ofbeldi sem sjúklingar heilbrigðisstofnana beita er oft flokkað sem líkamlegt ofbeldi, ofbeldi
gagnvart hlutum, ógnandi hegðun og munnlegt ofbeldi, ofbeldi gagnvart sjálfum sér og
kynferðislegt ofbeldi (Caruso o.fl., 2021; Wei o.fl., 2016). Af þessu er munnlegt ofbeldi algengast
(Hahn o.fl., 2008) og oftast eru gerendur sjúklingar og aðstandendur þeirra. Ofbeldi af hálfu
samstarfsfólks er þó einnig þekkt (Hahn o.fl., 2008; Spector o.fl., 2016). Margar ástæður
geta verið fyrir því að sjúklingar sýna ofbeldi á sjúkrahúsum. Má þar nefna óánægju með
meðferð, langan biðtíma, erfiðleika við að ná tali af lækni, útskriftarferlið, frelsisskerðingu,
sjúkdómsástand, ágreining á milli sjúklinga og starfsfólks og regluverk á deildum (Caruso o.fl.,
2021; Kumar o.fl., 2016).
Á sjúkrahúsum er algengast að starfsfólk geðdeilda, slysa- og bráðadeilda og öldrunardeilda
verði fyrir ofbeldi (Edward o.fl., 2014; Magnavita og Heponiemi, 2012; Spector o.fl., 2014).
Í tyrkneskri rannsókn kom fram að á bráðageðdeildum var hætta vegna ofbeldis þriðja
algengasta hjúkrunargreiningin (Yalcinturk o.fl., 2018) og í þýskri rannsókn, sem gerð var á
nokkrum sjúkrahúsum og þ. á m. á geðdeildum, kom fram að aðeins um fimmtungur (20,5%)
starfsfólks hafði ekki orðið fyrir ofbeldi á vinnustað sínum síðustu 12 mánuði. Af þeim sem urðu
fyrir ofbeldi sögðust 94,1% hafa orðið fyrir munnlegu ofbeldi og 69,8% fyrir líkamlegu ofbeldi
(Schablon o.fl., 2018). Yfirlitsgrein um ofbeldi gagnvart starfsfólki geðdeilda í Bandaríkjunum
sýndi að 25-85% starfsfólks sögðust hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á 12 mánaða tímabili
(Odes o.fl., 2021). Í yfirlitsgrein um 21 rannsókn kom í ljós að 16% sjúklinga sem dvelja á
geðdeildum sýna ofbeldi einhvern tímann í dvölinni. Eins og annars staðar þar sem starfsfólk
verður fyrir ofbeldi við störf sín hefur ofbeldi áhrif á heilsu starfsfólks geðdeilda og stuðlar að
óánægju í starfi, kvíða, og fjarveru frá vinnu (Ali o.fl., 2021; Hills og Joyce, 2013; Shier o.fl., 2016).
Þá getur aukinn rekstrarkostnaður fylgt ofbeldi á deild og aðgerðum til að takast á við það
(Edward o.fl., 2007).
Þó að rannsóknir sýni mismunandi niðurstöður á milli kynja virðast ungir karlkyns sjúklingar
sem hafa verið nauðungarvistaðir og eiga við persónuleikavandamál og fíkniefnaneyslu að
stríða, oftast sýna ofbeldi á geðdeildum (Binil o.fl., 2017). Starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi
virðist einnig oftast vera ungir karlar, með stutta starfsreynslu og starfa við hjúkrunarstörf.
Konur verða þó venjulega oftar fyrir kynferðislegu ofbeldi en karlar (Hahn o.fl., 2008; van
Leewen og Harte, 2015) en karlar fyrir líkamlegu ofbeldi (Odes o.fl., 2021). Þó að starfsfólk
geðdeilda verði fyrir ofbeldi er mjög mikilvægt að taka fram að langflestir sjúklinga geðdeilda
sýna ekki ofbeldi.
Rannsóknir á geðdeildum sýna að allt að 94% hjúkrunarfræðinga og starfsfólks undir
þeirra stjórn verður fyrir munnlegu ofbeldi af hálfu sjúklinga og ættingja þeirra og 82% fyrir
líkamlegu ofbeldi (Edward o.fl., 2014; Spector o.fl., 2014). Aðrar starfsstéttir eins og læknar,
félagsráðgjafar, sálfræðingar og iðjuþjálfar verða einnig fyrir ofbeldi, en nokkuð sjaldnar (Hahn
o.fl., 2008; Hills og Joyce, 2013; Koritsas o.fl., 2010; Kumar o.fl., 2016; Magnavita og Heponiemi,
2012). Á einu ári höfðu 67% félagsráðgjafa í Ástralíu við hin ýmsu störf orðið fyrir ofbeldi á
síðustu 12 mánuðum (Koritsas o.fl., 2010). Í Bretlandi kom í ljós að 51% sjúkraþjálfara sem
starfaði á geðdeildum hafði orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á starfsævi sinni og 24% á síðustu
12 mánuðum, allt frá einu sinni til 20 sinnum (Stubbs og Dickens, 2009). Í Svíþjóð hafði 1,2%
INNGANGUR
JÓN SNORRASON
geðhjúkrunarfræðingur
Geðsvið Landspítala
JÓN FRIÐRIK SIGURÐSSON
prófessor
Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík
Ofbeldi gagnvart
starfsfólki geðdeilda
Landspítala
Ritrýnd grein | Peer review
Höfundar