Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 68
68 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Ofbeldi gagnvart starfsfólki geðdeilda Landspítala
Tafla 2 sýnir fjölda starfsfólks sem varð fyrir líkamlegu,
munnlegu og kynferðislegu ofbeldi í starfi síðustu 12 mánuði,
hversu oft það varð fyrir ofbeldi, hverjir voru gerendur
ofbeldis, hverjar voru afleiðingar ofbeldis fyrir það strax eða
stuttu eftir og hversu marga daga starfsfólk var frá vinnu í
NIÐURSTÖÐUR
Rýnirannsókn
Rannsóknin fór fram í apríl og maí árið 2019 á geðsviði
Landspítala. Allt starfsfólk sviðsins var í rannsóknarúrtakinu
eða 609 manns og 226 (36,1%) svöruðu rafrænum spurninga-
lista um ofbeldisatvik sem sendur var með tölvupósti.
AÐFERÐ
Spurningalistinn samanstóð af eftirfarandi spurningum: Hefur
þú orðið fyrir ofbeldi (líkamlegu, munnlegu eða kynferðislegu)
síðustu 12 mánuði? Hver var gerandi ofbeldisins? Hverjar voru
afleiðingar ofbeldis fyrir þig? Hvernig líður þér í vinnunni?
Ef þátttakendur höfðu orðið fyrir ofbeldi oftar en einu sinni
voru þeir beðnir um að tilgreina afleiðingar alvarlegasta
ofbeldisins. Auk þess var spurt um aldur, kyn, starfsaldur og
starfsheiti (sjá töflu 1). Skilgreining Boyle og Wallis (2016) kom
fram við hverja spurningu. Áður en spurningalistinn var lagður
fyrir svarendur var hann lagður fyrir nokkra starfsmenn og þeir
beðnir um að koma með ábendingar og athugasemdir um
orðalag og annað sem betur mætti fara.
Tafla 1. Aldur þátttakenda eftir aldursflokkum, kyn, starfsaldur og starfsheiti
Bakgrunnsbreytur Fjöldi (%)
Aldur
18-30 ára 62 (27,4)
31-50 ára 95 (42,0)
Eldri en 50 ára 69 (30,5)
Kyn
Karl 70 (31,0)
Kona 156 (69,0)
Starfsaldur
Minna en 1 ár 37 (16,4)
1-5 ár 87 (38,5)
Meira en 5 ár 102 (45,1)
Starfsheiti
Læknir 22 (9,7)
Hjúkrunarfræðingur 62 (27,4)
Félagsliði/ráðgjafi-stuðningsfulltrúi 61 (27,0)
Sálfræðingur 31 (13,7)
Félagsráðgjafi 15 (6,6)
Iðjuþjálfi 4 (1,8)
Annað (t.d. sjúkraliði, ritari, sjúkraþjálfari) 31 (13,7)
sálfræðinga verið ógnað í vinnu sinni og 1,3% verið beitt
líkamlegu ofbeldi (Jungert o.fl., 2015) og í breskri rannsókn
höfðu 12,4% geðlækna orðið fyrir líkamlegu ofbeldi síðustu 12
mánuði (Dhumad, o.fl., 2007).
Skráning ofbeldisatvika er mikilvæg og eitt af
grundvallaratriðum til að styðjast við þegar ofbeldi á
sjúkrahúsum er kortlagt og til að grípa til fyrirbyggjandi
aðgerða. Það hefur hins vegar löngum verið vitað að
ofbeldisatvik á sjúkrahúsum eru vanskráð eða í allt að 88%
tilvika (Magnavita og Hoponiemi, 2012, Odes o.fl., 2021).
Þannig er tíðni skráðra ofbeldisatvika og tíðni ofbeldisatvika,
sem fram koma í könnunum, ekki alltaf sambærilegar.
Aðrar ástæður fyrir því að ýmsum annmörkum er háð að
bera saman rannsóknir á ofbeldi gagnvart starfsfólki á
heilbrigðisstofnunum eru ólíkar skilgreiningar á ofbeldi.
Sumar rannsóknir mæla eingöngu ofbeldi sem starfsfólk
verður fyrir af völdum sjúklinga og gesta á meðan aðrar
mæla einnig ofbeldi sem starfsfólk verður fyrir af hendi
samstarfsfólks. Þá mæla aðrar rannsóknir ofbeldi gagnvart
starfsfólki eingöngu á ákveðnum deildum, rannsóknartímabil
eru ólík, o.s.frv.
Í þessari rannsókn er stuðst við skilgreiningar Boyle og
Wallis, 2016) á ofbeldi:
Líkamlegt ofbeldi
Starfsfólk verður fyrir líkamlegri snertingu gegn vilja sínum,
sem getur valdið líkamlegum og/eða sálrænum skaða (Hér
er átt við atriði eins og að starfsfólk er slegið, sparkað í
það, gripið í það, hrækt á það, o.s.frv.).
Munnlegt ofbeldi
Starfsfólk upplifir að veist sé að sér sem manneskju og
fagmanneskju með hinu talaða orði og það niðurlægt (Hér
er átt við atriði eins og að tala niður til starfsfólks, öskrað á
það, starfsfólki hótað, o.s.frv.).
Kynferðislegt ofbeldi
Starfsfólk upplifir að líkamleg snerting, ummæli, ávarp,
eða önnur athöfn séu af kynferðislegum toga og gegn vilja
þess. (Hér er átt við atriði eins og að kynfæri eða brjóst
starfsfólks eru snert, eitthvað er sagt við starfsfólk sem
hefur kynferðislega merkingu, o.s.frv.).
Rannsóknin varpar vonandi ljósi á hver er staða þessara
mála og gefur tilefni til að bera niðurstöðurnar saman við
sambærilegar erlendar rannsóknir. Tilgangur rannsóknarinnar
er því að kanna hversu margt starfsfólk á geðsviði Landspítala
hefur orðið fyrir ofbeldi á 12 mánuðum.
Við tölfræðilega úrvinnslu var notast við SPSS 26.0. Reiknaður
var út fjöldi og hlutfall þeirra sem höfðu orðið fyrir ofbeldi,
afleiðingar, fjöldi fjarverudaga eftir ofbeldi og líðan í starfi.
Kí-kvaðratpróf var notað til að skoða tengsl á milli aldurs,
starfsaldurs, kyns, starfsheitis og ofbeldis. T-próf óháðra
úrtaka var notað til að skoða tengsl milli líðanar í starfi og þess
að hafa orðið fyrir ofbeldi annars vegar og hins vegar að hafa
ekki orðið fyrir ofbeldi.
Leyfi fyrir rannsókninni fengust hjá Siðanefnd stjórnsýslu-
rannsókna Landspítala (Nr. 1/2019), svo og framkvæmdastjóra
mannauðssviðs og geðsviðs og hún var tilkynnt til Persónu-
verndar.