Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 71
Ritrýnd grein | Peer review
Tæplega 36,1% svörun verður að teljast frekar lítil þátttaka
og þarf því að taka niðurstöðunum með fyrirvara. Nokkrar
skýringar kunna að vera á lítilli svörun. Ein skýring gæti
verið að starfsfólk hafi ekki opnað póst sinn á þeim tíma
sem gagnasöfnun stóð yfir og rannsóknin hafi því farið fram
hjá því eða að það hafi ekki talið sig hafa tíma til þátttöku.
Þá getur einnig verið að vanskráning endurspegli viðhorf
starfsfólks geðdeilda um að ofbeldi sjúklinga á geðdeildum sé
óhjákvæmilega eitt af viðfangsefni starfsfólks og því óþarfi að
skrá það frekar en mörg önnur viðfangsefni (Stevenson o.fl.,
2015). Líðan þátttakenda og afleiðingar ofbeldis var ekki mæld
með sérstökum mælitækjum og því er ekki hægt að útiloka að
niðurstöðurnar hefðu orðið aðrar með notkun þeirra. Svörin
gefa hins vegar ákveðnar vísbendingar sem koma heim og
saman við sambærilegar erlendar rannsóknir (Ali o.fl., 2021;
Caruso o.fl., 2021; Hills o.fl., 2013). Þá er þess að geta að tíðni
ofbeldis er misjafnt eftir deildum en í þessari rannsókn var
eingöngu heildartíðni ofbeldis á geðdeildum Landspítala
skoðuð. Að lokum verður að nefna að starfsfólk BUGL var ekki
í úrtaki rannsóknarinnar.
ANNAMARKAR
Að undanförnu hefur á opinberum vettvangi farið fram
gagnleg umræða um nauðungaraðgerðir á geðdeildum.
Frásagnir og reynslusögur fólks sem dvalið hefur á geðdeildum
og verið beitt nauðungaraðgerðum hafa opnað augu
heilbrigðisstarfsfólks fyrir mikilvægi þess að draga úr þeim
eins og kostur er. Minna hefur verið fjallað um ofbeldi sem
starfsfólk geðdeilda verður fyrir en nauðungaraðgerðum
er beitt í neyð þegar sjúklingar sýna ofbeldi. Starfsfólk
heilbrigðisstétta menntar sig til starfa sem hafa að markmiði
að hjálpa fólki sem á við veikindi að stríða. Það stríðir
gegn hugmyndafræði þeirra að vera útsett fyrir ofbeldi á
meðan það gegnir störfum sínum og það gerir kröfur um að
vinnustaðurinn tryggi öryggi þeirra. Skipulögð fræðsla og
þjálfun geta aukið öryggi starfsfólks en hvort tveggja þarf
að byggja á gagnreyndri þekkingu og reynslu. Rannsóknin
sem hér um ræðir á að veita upplýsingar um ástand mála
á geðdeildum Landspítala hvað varðar ofbeldi gagnvart
starfsfólki og nýtast í aðgerðum til að draga úr því.
LOKAORÐ