Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 74
Klamydía er algengur kynsjúkdómur meðal ungs fólks. Helsta forvörnin felst í smokkanotkun en lítið er vitað um hana meðal ungra karlmanna hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða þættir skipta máli við smokkanotkun ungra karlmanna, bæði hvetjandi og letjandi þættir. Rannsóknin grundvallast á eigindlegri aðferð, rýnihóparannsókn. Þátttakendur voru valdir í rannsóknina með tilgangs- og snjóbolta- úrtaksaðferð. Þeir voru nemendur í tveimur framhaldsskólum, annar í Reykjavík og hinn á Akureyri. Tekin voru viðtöl við sex rýnihópa. Viðtölin voru skráð frá orði til orðs og greind í þemu með rammaaðferð. Alls tóku 36 ungir karlmenn, á aldrinum 18-23 ára, þátt í rannsókninni. Niðurstöður leiddu í ljós fjögur þemu, sem voru grín og sprell, þægilegra án smokks, skrítið augnaráð og eyðileggur „momentið“. Í gegnum þemun eru lýsingar á letjandi og hvetjandi þáttum. Fram kom að það helsta sem hindraði notkun smokka var takmörkuð fræðsla, neikvæð viðhorf, erfiðleikar við að kaupa smokka og notkun þeirra. Það sem einkum hvatti til smokkanotkunar voru mögulegar neikvæðar afleiðingar áhættu- hegðunar, jákvæð viðhorf til smokka og notkunar þeirra sem gaf til kynna sjálfsöryggi þátttakenda. Ungum karlmönnum finnst lítið vera rætt við þá um smokkanotkun, þá skortir fræðslu um smokka og fyrirmyndir um notkunina. Kennarar og skólahjúkrunarfræðingar í grunn- og framhaldsskólum landsins þurfa að fá menntun og þjálfun til að koma kynfræðsluefni um smokka betur áleiðis til ungra karlmanna. Jafnframt þarf að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu varðandi kynheilbrigðismál. Bæta þarf sýnileika og aðgengi að smokkum. Tilgangur ÚTDRÁTTUR Aðferð Niðurstöður Lykilorð: Ungir karlmenn, smokkanotkun, kynheilbrigði, letjandi þættir, hvetjandi þættir. Ályktun HAGNÝTING RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“ Nýjungar: Gefin er innsýn í hvetjandi og letjandi þætti smokkanotkunar ungra karlmanna sem getur gefið leiðarljós fyrir inngrip á þessu sviði. Hagnýting: Það er mikilvægt að útbúa fræðsluefni um smokkanotkun en samhliða að mennta og þjálfa kennara og skólahjúkrunarfræðinga til að þeir geti betur staðið að fræðslu og samtali um þessi mál. Þekking: Það er ákveðinn hópur ungra íslenskra karlmanna sem hefur ekki næga vitneskju um smokka og notkun þeirra, hefur ýmiss neikvæð viðhorf til smokkanotkunar, þessa menn skortir færni til að tjá sig um smokkanotkun og standa frammi fyrir ýmsum erfiðleikum við smokkanotkun. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Skólahjúkrunarfræðingar í grunn- og framhaldsskólum þurfa að hafa vitneskju um hvetjandi og letjandi þætti smokkanotkunar meðal ungra karlmanna til að geta stuðlað að kynheilbrigði þeirra og fyrirbyggja kynsjúkdóma. „Þetta er ekkert flókið“ Smokkanotkun ungra karlmanna Ritrýnd grein | Peer review
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.