Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 74
Klamydía er algengur kynsjúkdómur meðal ungs
fólks. Helsta forvörnin felst í smokkanotkun en lítið
er vitað um hana meðal ungra karlmanna hérlendis.
Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða þættir
skipta máli við smokkanotkun ungra karlmanna,
bæði hvetjandi og letjandi þættir.
Rannsóknin grundvallast á eigindlegri aðferð,
rýnihóparannsókn. Þátttakendur voru valdir
í rannsóknina með tilgangs- og snjóbolta-
úrtaksaðferð. Þeir voru nemendur í tveimur
framhaldsskólum, annar í Reykjavík og hinn á
Akureyri. Tekin voru viðtöl við sex rýnihópa. Viðtölin
voru skráð frá orði til orðs og greind í þemu með
rammaaðferð.
Alls tóku 36 ungir karlmenn, á aldrinum 18-23
ára, þátt í rannsókninni. Niðurstöður leiddu í ljós
fjögur þemu, sem voru grín og sprell, þægilegra án
smokks, skrítið augnaráð og eyðileggur „momentið“.
Í gegnum þemun eru lýsingar á letjandi og hvetjandi
þáttum. Fram kom að það helsta sem hindraði
notkun smokka var takmörkuð fræðsla, neikvæð
viðhorf, erfiðleikar við að kaupa smokka og notkun
þeirra. Það sem einkum hvatti til smokkanotkunar
voru mögulegar neikvæðar afleiðingar áhættu-
hegðunar, jákvæð viðhorf til smokka og notkunar
þeirra sem gaf til kynna sjálfsöryggi þátttakenda.
Ungum karlmönnum finnst lítið vera rætt við
þá um smokkanotkun, þá skortir fræðslu um
smokka og fyrirmyndir um notkunina. Kennarar
og skólahjúkrunarfræðingar í grunn- og
framhaldsskólum landsins þurfa að fá menntun
og þjálfun til að koma kynfræðsluefni um smokka
betur áleiðis til ungra karlmanna. Jafnframt þarf að
styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu varðandi
kynheilbrigðismál. Bæta þarf sýnileika og aðgengi
að smokkum.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Ungir karlmenn, smokkanotkun, kynheilbrigði,
letjandi þættir, hvetjandi þættir.
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Gefin er innsýn í hvetjandi og letjandi
þætti smokkanotkunar ungra karlmanna sem
getur gefið leiðarljós fyrir inngrip á þessu sviði.
Hagnýting: Það er mikilvægt að útbúa
fræðsluefni um smokkanotkun en
samhliða að mennta og þjálfa kennara og
skólahjúkrunarfræðinga til að þeir geti betur
staðið að fræðslu og samtali um þessi mál.
Þekking: Það er ákveðinn hópur ungra íslenskra
karlmanna sem hefur ekki næga vitneskju um
smokka og notkun þeirra, hefur ýmiss neikvæð
viðhorf til smokkanotkunar, þessa menn
skortir færni til að tjá sig um smokkanotkun
og standa frammi fyrir ýmsum erfiðleikum við
smokkanotkun.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Skólahjúkrunarfræðingar í grunn- og
framhaldsskólum þurfa að hafa vitneskju um
hvetjandi og letjandi þætti smokkanotkunar
meðal ungra karlmanna til að geta stuðlað að
kynheilbrigði þeirra og fyrirbyggja kynsjúkdóma.
„Þetta er ekkert flókið“
Smokkanotkun ungra karlmanna
Ritrýnd grein | Peer review