Úrval - 01.02.1952, Blaðsíða 50
4S
ORVAL
frá því að hann var 30 ára gam-
aJl, en þó er hann teinréttur, les
gleraugnalaust og er ekki hið
minnsta skjálfhentur.
Heimspekingurinn Benedetto
Croce er 85 ára gamall, en þó
fer hann á fætur klukkan átta
á hverjum morgni og vinnur í
10 klukkustundir. Hann borðar
mjög lítið — ekkert kjöt — en
er þó í góðum holdum og minn-
ir einna helzt á gamlan, mein-
lausan rostung.
Croce fékk „slag“ á síðast-
liðnu ári, en er nú algerlega bú-
inn að ná sér — hann talar,
hugsar og skrifar án nokkurra
erfiðleika. Hann er líka þing-
maður og mjög afkastamikill.
Tvær bækur eftir hann komu
út á árinu 1950, og ný bók, heim-
spekilegs efnis, er að verða til-
búin til prentunar.
Bernhard Berenson, hinn 86
ára gamli listfræðingur, býr í
námunda við Flórens og á eitt
hið ágætasta safn flórenskra
málverka og egypzkra högg-
mynda, auk bókasafns, sem í
eru um 50 þúsund bindi. Rit eftir
hann um málarann Caravaggio
er nýkomið út og önnur bók er
í þann veginn að koma út.
Heimspekingurinn George
Santayana er 87 ára að aldri
og hefur dvalizt í Róm síðustu
tíu árin. Sjón hans er tekin að
daprast, en hann heldur áfram
að starfa, og hann sýndi mér
prófarkir af geysimiklu riti, sem
hann hefur samið. Hann les lat-
neskar bókmenntir og hefur
mikinn áhuga á nýtízku ljóða-
gerð.
Franski stjómmálamaðurinn
Edouard Herriot er nýlega
orðixrn 79 ára. Hann vaknar
klukkan sjö á hverjum morgni,
snæðir morgunverðinn í rúminu
og vinnur til klukkan 11. Þrjá
daga vikunnar gegnir hann for-
setastörfum í þjóðþinginu; hann
er einnig formaður flokks Radi-
kal-sósíalista. Á hverjum laug-
ardagsmorgni ekur hann til Ly-
on, þar sem hann er borgar-
stjóri. Á sunnudögum dvelst
hann ásamt konu sinni í göml-
um kastala, en á mánudögum í
húsi sínu í borginni og á fund-
um með borgarstjórninni. Á
þriðjudögum heldur hann aftur
til Parísar. Hann skrifar tvær
blaðagreinar á mánuði, er að
ljúka við annað bindið af endur-
minningum sínum og lauk við
bólc um franska myndhöggvar-
ann Rodin árið 1949.
Hann hefur yndi af hljómlist
og leiklist, en mesta ánægja hans
er þó að fara í sirkus í fylgd
með iitlum börnum. Þó hefur
hann lengi átt við að stríða
æðabólgu í vinstra fæti og lang-
vinnan bronchitis.
í Englandi hitti ég Samúel lá-
varð, fyrrum landstjóra í Pale-
stínu. Hann er nú áttræður, en
hefur nýlega gefið út bók, sem
fjallar um sambandið milli vís-
inda, heimspeki og trúarbragða.
„Þessi bók skrifaði sig sjálf,“
sagði hann. „Þetta var nýtt við-
fangsefni fyrir mig. Því eldri