Úrval - 01.02.1952, Síða 55

Úrval - 01.02.1952, Síða 55
53 BEAUMARCHAIS ing og önnur styttri verk sín í veizlum tignarmanna í París, en almenna frægð hlaut hann fyrst þegar hann hóf málaferli sín gegn erfingjum Paris-Duver- neys eftir að hann dó 87 ára gamall árið 1770. Rétt áður en málið átti að koma fyrir rétt var Beaumarehais tekinn hönd- um og settur í fangelsi vegna blóðugra áfloga við hertogann af Chaulnes. Hann var látinn laus nógu snemma til að tapa málinu við erfingjana og var dæmdur til að greiða þeim of- fjár. Hann missti húsið í Rue Condé og stóð nú uppi allslaus. En hann lagði ekki árar í bát og tók nú að semja flugrit sem öfluðu honum vinsælda meðal almennings. Beaumarchais var á hvers manns vörum í París eftir áflogin við hertogann af Chaulnes, og í flugritum sínum lagði hann nú áherzlu á og hrósaði sér af borgarlegum upp- runa sínum og hafði andstæð- inga sína í aðals- og dómara- stétt að háði og spotti. Sviss- neskri stúlku, 23 ára gamalli, Mademoiselle Willermaula að nafni, fannst svo mikið til um dirfsku hans og varð svo hrifin af leiftrandi háði hans, að hún gerðist ástmey hans. Hún ól honum dóttur og mörgum árum seinna kvæntist hann henni. Eftir þessa glæsilegu baráttu sína sem frelsishetja og and- stæðingur hins óskoraða kon- ungsvalds tók hann nú aftur að leita eftir hylli konungs. Þessi merkilegu sinnaskipti urðu ekkj án árangurs. Honum tókst að komast í samband við hirðina og var sendur til Englands til að stöðva þau skrif sem þaðan var dreift um Madame du Barry, þáverandi ástmey kon- ungsins. Iionum tókst að þagga niður í aðalhöfundi níðskrifanna með ríflegum fégjöfum. Seinna fór Beaumarchais margar ferð- ir til London til þess að stöðva fjárkúgun sem einhver dular- fullur riddari rak með hótun um að birta lannungarmál sem honum voru kunn úr einkalífi Lúðvíks XV. Þegar nýlendur breta í Norður-Ameríku hófu frelsisbaráttu sína skrifaði Beaumarchais konungi og ráð- herrum hans hvert bréfið á fætur öðru til að fá þá til að hjálpa nýlendunum. Hann fékk sitt mál fram og spádómar hans um frelsun Ameríku reyndust réttir. Árið 1780 keypti höfundur ,,Figaros“ útgáfuréttinn að verkum Voltaires og eyddi miklu fé í skrautútgáfu þeirra. Á byltingarárunum hugðist hann gerast vopnasali og bauð uppreisnarmönnum 60000 byss- ur frá Hollandi. Þeim viðskipt- um lauk með því að hann var tekinn fastur. Seinna flýði hann til Hamborgar. Árið 1796 fékk hann leyfi til að koma aftur til Frakklands. Hann orti mörg lofkvæði um Napóleon og reyndi að fá því til leiðar komið að hann yrði sendur til Banda-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.