Úrval - 01.02.1952, Side 58

Úrval - 01.02.1952, Side 58
56 TJRVAL þeim, en strax og þeim er fært frá, koma þær heim að kofa sínum kvölds og morgna til að láta mjólka sig, án þess að það þurfi að smala þeim. Annars hlýða þær mjög vel kalli óg hundgelti. Ef þær heyra kallið „kiða-kið“, þá taka þær fljót- lega á rás heim. Þegar líður á sumar, og einkum þegar haustar, fara þær lengra burtu til beit- ar og vilja þá gleyma að koma heim á réttum tíma. Þótt ætla mætti að geitur væru rólyndar skepnur og ljúf- ar 1 umgengni, þá er svo ekki að öllu leyti. Þær eru að vísu yfirleitt gæfar og koma af sjálfsdáðum til mjaltarans, svo að venjulega gerist ekki þörf að reka þær í hús eða rétt á með- an þær eru mjólkaðar. Þær eru oft mannillar og sér í lagi hafr- arnir. Bitnar þessi skapgerðar- galli þó meira á krökkum en fullorðnum. Innbyrðis eru þær í sííelldum erjum og nota bæði kjaft og horn. Ber einkum mik- ið á þessu í húsum inni, þegar þeim er gefið hey eða annað. Geitum er tæplega hægt að gefa hey í garða eins og fé. Það þarf að gefa þeim í jötur og festa hverja einstaka með þar til gerðum lokum, svo að þær geti ekki komizt niður af jötunni á meðan þær éta, eða þá að standa yfir þeim á meðan með reidd- an staf, til þess að halda uppi lögum og rétti í geitakofanum. Að Öðrum kosti yrði þar sam- felld orrusta á meðan nokkurt strá væri í jötunni. Væri þá vís- ast, að þær geitur, sem væru eitthvað minni máttar, væm reknar burtu frá jötunni af þeim, sem betur mega sín og bitnar og barðar. Mjög er það algengt að geitur séu rifbrotn- ar, kviðrifnar og að eyrun séu bitin meira og minna. Hvort þessi skapgerð er sérkenni fyr- ir íslenzku geitina, veit ég ekki með vissu, en mér þykir ekki ólíklegt að svo sé, því að í gegn- um liðnar aldir hefur geitin oft átt við hörð kjör að búa og þá: ekki ólíklegt að skapmestu ein- staklingarnir hafi haldið velli í harðræði, en þeir skapminni fallið. Hér að framan hefur verið vikið að nokkrum eiginleikum og háttum geitanna, en nú mætti e. t. v. spyrja: Er það ekki eðlileg rás breyttra tíma, að íslendingar hætti allri geita- rækt? Ég held það sé ekki rétt stefna. Ég held líka að meðferð þeirra þurfi að breytast og ég held að geitaræktin ætti að flytj- ast að einhverju leyti í sjávar- þorpin. Þar hefur margur nægi- legt land til þess að hafa 2—4 geitur, þótt ekki sé hægt að hafa kú. Geiturnar mega að sjálfsögðu ekki ganga lausar, þær verður að tjóðra. Vetrar- fóður þurfa þær ekki mikið, séu bær látnar mjólka. Þær éta hvaða hey sem er- Þær éta allan ma,tarúrgang, bæði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.