Úrval - 01.02.1952, Page 80
78
■Orval
á þeim aldri er lögun kjálkans
að verða fast mótuð og enda-
jaxlarnir enn óþroskaðir.
Að bæta missi blóðs — þýð-
ingarmesta vökva líkamans —
með blóði úr öðrum, er nú nærri
því eins algengt og að aka bif-
reið sinni að bensínstöð og fá
dælt á geyminn. Og fyrir kem-
ur, að algerlega er skipt um blóð
1 mannslíkamanum, eins og þeg-
ar dæluhólf er tæmt og fyllt að
nýju. Stundum fæðast börn með
hræðilegan sjúkdóm, sem nefn-
ist erythroblastis; þau hafa gulu
og aðeins helming rauðra blóð-
koma miðað við hið venjulega —
allt vegna þess, að Rh-þáttur
blóðsins er af öðrum flokki en
móðurinnar. Þá verður að ná
hinu eitraða blóði úr æðum
barnsins og fylla þær aftur með
blóði af gagnstæðum flokki.
Tilbúnir líkamshlutar.
Eins og vel útbúin viðgerðar-
vinnustofa geymir mikið af
varahiutum í vélar þær, er hún
tekur til viðgerðar, þannig hef-
ur líka nútíma sjúkrahús forða-
búr, þar sem geymdir em nátt-
úrlegir likamshlutar, en auk þess
margskonar efni til að laga, end-
umýja og gera við mannslíkam-
ann. Margs konar málmar eru
notaðir við þessar viðgerðir, svo
sem nálar, naglar, pípur og vír-
net. Þegar heilaæxli hefur verið
numið burt með skurðaðgerð, er
net úr ryðfríu stáli notað, á sama
hátt og jámið í steinsteypu, til
þess að fylla í gatið á höfuð-
kúpunni, sem stundum getur
verið 4 cm í þvermál.
Einn þessara málma er vit-
allium, sem er blanda af kóbolt,
króm og nikkel. Það eyðist ekki
fremur en ryðfrítt stál og veld-
ur engri ertingu í líkaman-
um. Plötur, nálar eða skorður
úr þessu efni má því setja inn.
í líkamsvefina, og þar getur það
verið kyrrt, það sem maðurmn
á eftir óiifað.
Tantalum er einn af sjaldgæf-
ari málrnum, sem í jörðu finn-
ast. Það er sveigjanlegt og lint,
gagnstætt stáli og vitallium. Það
má fletja út í þunnar plötur
0,0006 mm þykkar. Einnig má
búa til úr því þræði, sem eru
fjórum sinnum mjórri en manns-
hár. Meira en 10.000 m af þess-
um þræði voru notaðir í stríð-
inu, til þess að binda saman
sundurslitnar taugar og æðar.
Þráðanet gert úr tantalum hef-
ur með góðum árangri verið not-
að til að gera við rifna fituvefi
í feitu fólki, þegar vefirnir hafa
ekki náð að gróa.
Gervi-Iiðír, Iimir, tennur,
augu og hár.
Mjaðmarliður hefur verið
búinn til úr 45 cm langri stál-
stöng með plastkúlu á öðr-
um endanum. Stöngin er rekin
inn í Iærlegginn, og kúlan felld.
inn í augnakarlinn. Árangurinn
var svo framúrskarandi, að nú
vona menn, að unnt verði að búa
til samskonar axlarlið.
Árlega verður mikill fjöldi