Úrval - 01.10.1954, Síða 10

Úrval - 01.10.1954, Síða 10
8 ÚRVAL skapar verk af sjálfum sér, en utan við sjálfan sig, og þegar því er lokið, yfirgefur hann það oft og tíðum og snýr huga sín- um frá því til þess að byrja á öðru nýju. Starfsemi konunnar er að stækka sína eigin veru. Hún getur vaxið mjög eins og króna á stóru tré, en rót sína á það ætíð í hennar eigin per- sónu. Sá karlmaður er lítils met- inn, sem engin afrek vinnur og ekki leiðir neitt verk til lykta. En margar konur hef ég þekkt, — kannski einkum meðal kyn- slóðarinnar næstu á undan mér, sem ekki gátu látið sín getið að neinum afrekum, en bjuggu yf- ir miklum mætti, höfðu þýðing- armikil áhrif, og settu sinn svip á allt, sem í kringum þær var. Mér verður hugsað til gömlu fóstrunnar minnar, sem í raun réttri var ekki sérlega atkvæða- mikil, en persónuleiki hennar gegnsýrði heimili okkar og fjölskyldu með kyrrlátum mögnuðum krafti, er breytti nálega öllu, sem fyrir honum varð. Ég hygg að hinar miklu konur veraldarsögunnar, drottn- ingar og helgar meyjar, hafi búið yfir slíkum krafti. Varla er hægt að segja, að María Ther- esía eða Elisabet og Victoria Bretadrottningar hafi unnið nokkur afrek, kannski hafa þær ekki nokkru sinni borið fram miklar hugmyndir á eigin spýt- ur, en með þessum krafti stækk- uðu þær persónuleika sinn, unz hann náði út yfir konungsríki og keisaradæmi, — og tímabil, sem ber nafn þeirra. Til er gamalt, enskt ástarljóð, þar sem elskhuginn segir við ástmey sína: Wherever you walk, cool gales shall fan the glade, trees where you sit shall crowd into a shade — (Hvar sem þú gengur fylgja þér svalandi vindar, þar sem þú situr, þyrpast saman stór, skuggsæl tré). Þar sem þú gengur, fyllizt líf- ið nýjum hugmyndum og ævin- týrum umhverfis þig skapast heimili, hópur, hamingjusöm veröld. Eitt einstakt afrek lyftir karl- manninum til hárra hæða á tíma hans og í sögunni. Colum- bus fann Ameríku og varð af því ódauðlegur , —- ég veit að minnsta kosti fátt annað um hann. Ef við læsum í mannkyns- sögunni um konu, sem hefði fundið Ameríku, væri ekki ó- líklegt, að við hrópuðum: „Þetta hefur verið vitlaus kerling. Til hvers skyldi hún hafa verið að finna Ameríku? Nei, var hún falleg, var hún ástúðleg, hvaða þýðingu hafði hún fyrir fólkið, sem umgekkst hana?“ Mesti og reyndar eini her- stjórnarsnillingur okkar kvenna er ekki umtöluð fyrir neina ein- staka hetjudáð eða afrek, — hvorki sem sigurvegarinn frá Patay né skapari konungsins í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.