Úrval - 01.10.1954, Blaðsíða 112
110
ÚRVAL
um annað en þig. Ég hef lifað
í hugsuninni um þig . . . Og mig
langaði að gleyma, að gleyma,
en hversvegna, hversvegna
komstu?“
Á stigapallinum fyrir ofan
þau stóðu tveir skólapiltar og
reyktu og horfðu á þau, en
Gomov var sama.
Hann vafði hana örmum og
kyssti hana á vanga og hendur.
„Hvað ertu að gera? Hvað
ertu að gera?“ sagði hún skelfd
og ýtti honum frá sér . . . „Við
erum bæði brjáluð. Þú verður
að fara burt í kvöld. Þú verður
að fara strax . . . Eg særi þig
við allt sem þér er heilagt, ég
grátbið þig . . . Fólkið er að
koma ■—■ “
Það gekk einhver framhjá
þeim upp stigann.
„Þú verður að fara héðan,“
hvíslaði Anna Sergueyevna.
„Heyrir þú það, Dimitri Dimi-
trich ? Ég skal koma til Moskvu.
Ég hef aldrei verið hamingju-
söm. Nú er ég óhamingjusöm,
og ég verð aldrei, aldrei ham-
ingjusöm. Kveldu mig ekki leng-
ur. Ég sver, að ég skal koma til
Moskvu. Og nú skulum við
skilja. Elskan mín, elsku vinur-
inn minn, við verðum að skilja!“
Hún tók í hönd hans og gekk
síðan hratt niður stigann, en
hafði þó ekki augun af honum,
og það var auðséð að hún var
sorgbitin. Gomov stóð stundar-
korn í sömu sporum og hlust-
aði; síðan, þegar allt var orðið
hljótt, sótti hann frakkann sinn
og fór úr leikhúsinu.
IV.
Og Anna Sergueyevna fór að
venja komur sínar til Moskvu
til þess að hitta hann.
Hún fór frá S. á tveggja til
þriggja mánaða fresti og sagði
manni sínum að hún væri að
leita sér lækningar hjá sér-
fræðingi í kvensjúkdómum. Eig-
inmaðurinn vissi ekki hvort
liann átti að trúa henni eða tor-
tryggja hana.
I Moskvu dvaldi hún á Slavi-
ansky Basar og kom strax boð-
um til Gomovs. Hann hraðaði
sér til hennar, og engin mann-
eskja í Moskvu hafði hugmynd
um samfundi þeirra.
Einn vetrarmorgun, þegar
hann var á leiðinni til hennar
eins og venjulega — hann hafði
ekki fengið boðin frá henni
kvöldið áður — var dóttir hans
í fylgd með honum, því að skól-
inn sem hún var í var skammt
þaðan. Það var slydda, og stór-
ar, votar snjóflyksur féllu til
jarðar.
„Þriggja stiga hiti“, sagði
hann, „og samt snjór. En hitinn
er aðeins við yfirborð jarðarinn-
ar. Uppi í loftinu er miklu kald-
ara.“
„Já, pabbi. Hvers vegna er
aldrei þrumuveður á veturna?“
Hann skýrði það fyrir henni
líka, og um leið og hann talaði
var hann að hugsa um stefnu-
mótið, og enginn lifandi sál