Úrval - 01.10.1954, Page 60

Úrval - 01.10.1954, Page 60
58 ÚRVAL kulda af því að þau voru heim- ilislaus. „Léttið á vösum yðar og samvizku“ sagði Abbé Pi- erre. Og það var gert svo um munaði. Þetta var versti vetur, sem komið hafði í París í áratug, og um 2000 manns höfðu ekki ann- an náttstað en undir brúm Signu eða í göngum neðanjarðarbraut- .arinnar. Sumir dóu úr kulda. Ör- fáir þeirra áttu í útistöðum við lögregluna, en langflestir voru heiðarlegir verkamenn, sem hvergi gátu fengið húsnæði. Litli presturinn færði þeim heita súpu og brauð. Hann fór alltaf án þess að kveðja. „Hvernig gat ég sagt góða nótt við mann, sem ekki átti frakka og svaf á berum steinunum í frosti?“ Dag nokkurn fékk hann stórt bandarískt hertjald hjá fornsala og reisti það á auðu svæði. Hjá fóðursala fékk hann eina smá- lest af heyi og breiddi úr því undir strigann. Hjá öðrum fékk hann olíuofna, bedda og teppi- Þetta kvöld var hann sífellt á ferðinni í litla bílnum sínum að aka skjálfandi fólki til tjaldsins. Kvöld eftir kvöld hélt hann þessu áfram. En húsnæðisleys- ingjarnir skiptu þúsundum og tjaldið hans tók aðeins 60—70 manns. Hann varð að fá hjálp. Útvarpinu var ekki um að hleypa honum að hljóðneman- um, en lét honum þó loks eftir sjö mínútur. Hann hafði ekki undirbúið neina ræðu; orðin komu beint frá hjartanu. „Vinir mínir, ég bið um hjálp yðar,“ byrjaði hann. „Klukkan þrjú í nótt sem leið dó kona á Boule- vard Sebastopol — hún fraus í hel. Hún var með blað í hend- inni — útburðartilkynningu. Á hverju kvöldi hnipra sig saman á götunum yfir 2000 manns í frosti og kulda. Þetta fólk hefur ekkert þak yfir höfuðið; það er mafarlaust og sumt næsturn klæðlaust. I návist meðbræðra, sem eru að deyja úr örbyrgð, ættu menn aðeins að hafa eitt í huga: að koma í veg fyrir að þetta ástand haldi áfram. Ég bið yður, elskið hvern annan núna nógu mikið til að koma þessu í kring. Svona miklar þjáningar ættu að vekja hjá oss þá und- ursamlegu tilfinningu, sem er sál Frakklands. Okkur vantar teppi, tjöld, ofna. Komið strax með þetta til . . •“ Hann hikaði. Hann hafði engan stað þar sem hann gat tekið á móti þessu. Allt í einumundihanneftirbréfi, sem komið hafði um morguninn frá eiganda lítils gistihúss. Það var enginn tími til ag tala við bréfritarann. Hann lauk máli sínu: „Sendið það til Hotel Roc- hester rue de La Boétie.“ Tíu mínútum síðar tóku að streyma til gistihússins fata- bögglar, teppi og umslög með peningum. Dyravörðurinn vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Eftir klukkutíma þurfti að flytja burt stóla úr anddyrinu til að rýma fyrir sívaxandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.