Úrval - 01.10.1954, Page 111

Úrval - 01.10.1954, Page 111
KONAN MEÐ KJÖLTURAKKANN 109 heiminum en hún; hún var hon- um meira virði en allt annað í lífinu; hún var sorg hans, gleði hans og hamingja, og hann þráði hana, hljómsveitin lék illa, en meðan hávaðinn var sem mestur, var hann alltaf að hugsa um hve vænt honum þætti um þessa konu. Hann hugsaði og lét sig dreyma. í fylgd með Önnu Sergueyevnu var ungur maður með stutt kjálkaskegg, hávaxinn og lotinn í herðum; hann var alltaf að hneigja sig og beygja. Sennilega var þetta eiginmaður hennar, sem hún í reiði sinni í Yalta hafði kallað þjón. Og það var satt, vaxtarlag hans, kjálka- skeggið og litii skallabletturinn á hvirflinum minnti á þjón; bros hans var fleðulegt og hann var með eitthvert háskólamerki í hnappagatinu, sem var nákvæm- lega eins og númerin sem þjón- ar bera. 1 fyrsta hléinu fór eiginmað- urinn út til þess að kveikja sér í vindli, og hún sat ein eftir. Gomov gekk til hennar, reyndi að brosa og sagði með titrandi rödd: ,,Komdu sæl.“ Hún leit upp og fölnaði. Svo leit hún aftur á hann óttasleg- in, trúði ekki sínum eigin aug- um, kreisti höndina utan um blævænginn og var sýnilega að því komin að falla í ómegin. Bæði þögðu. Hún sat, hann stóð; hann óttaðist geðshræringu hennar og þorði ekki að setjast hjá henni. Það var farið að leika á fiðlur og hljóðpípur og skyndi- lega fannst þeim sem allt fólk- ið á svölunum væri að horfa á þau. Hún stóð upp og gekk hratt til dyranna; hann hélt á eftir henni og þau gengu bæði eins og í leiðslu eftir göngunum og upp stiga og niður stiga í iðandi mannþrönginni. Hjartað barðist ótt í brjósti Gomovs, og hann sagði við sjálfan sig: „Ó, guð minn góður! Hvers- vegna er allt þetta fólk hér og þessi andstyggilega hl jómsveit! ‘ ‘ f sama bili minntist hann þess þegar hann hafði kvatt Önnu á brautarstöðinni kvöldið góða, þá hafði hann talið sér trú um að öllu væri lokið milli þeirra, að þau myndu aldrei sjást framar. En nú — hve langa leið áttu þau ekki enn fyrir höndum! Hún staðnæmdist í þröngum og dimmum stiga. „En hvað þú gerðir mig hrædda!“ sagði hún og varpaði öndinni, hún var föl og viðutan. „Ö, hvað þú gerðir mig hrædda! Ég var næstum dauð. Hvers vegna komstu? Hversvegna?“ „Þú verður að skilja mig, Anna,“ hvíslaði hann. „Þú mátt til með að skilja . . . “ Hún horfði skelfd á hann, biðjandi, með ást í augunum, starði á hann til þess að rifja upp fyrir sér hvern einasta drátt í andiiti hans. „Ég kvelst svo mikið!“ hélt hún áfranp án þess að hlusta á hann. „Ég hef ekki hugsað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.