Bókatíðindi - 01.12.2000, Side 100
Fræði og bækur almenns efnis
ANDVARI
Bjartur
Leiðb.verð: 1.180 kr.
hver bók.
í áskrift: 980 kr.
ANDVARI 2000
Nýr flokkur XLII, 125. ár
Ritstj.: Gunnar
Stefánsson
Aðalgrein Andvara að
þessu sinni er ítarlegt
æviágrip Önnu Sigurðar-
dóttur, forstöðumanns
Kvennasögusafns Is-
lands, skráð af Sigríði
Erlendsdóttur sagnfræð-
ingi. Þetta er saga eftir-
minnilegrar konu og
jafnframt greinargerð um
réttindabaráttu kvenna á
Islandi á öldinni. -1 And-
vara eru einnig greinar
um kristni og kirkjumál í
tilefni þúsund ára afmælis
kristnitöku, yfirlitsgrein
um Hannes Sigfússon
skáld, fjallað um skoskan
áhugamann um íslensk
sjálfstæðismál, um ný rit
um íslenska rómantík og
fleira áhugavert efni sem
varðar íslenskar bók-
menntir og menningar-
sögu.
176 blaðsíður.
Hið íslenska
þjóðvinafélag
Dreifing: Sögufélag
ISSN: 0258-3771
Leiðb.verð: 1.700 kr.
AFTÖKUSTAÐIR I
LANDNÁMI INGÓLFS
OG AFTÖKUR
DÆMDRA MANNA
Páll Sigurðsson
Höfundur hefur í réttar-
sögurannsóknum sínum
sérstaklega fjallað um
refsirétt og refsifram-
kvæmd fyrri tíma. Hér er
tekið saman það helsta
sem vitað er um aftöku-
staði í landnámi Ingólfs,
allt frá Þingvöllum og
Ölfusi að Kjalarnesþing-
stað og suður með sjó.
Bókin er prýdd ljósmynd-
um og staðfræðikorti.
48 blaðsíður.
Ferðafélag Islands
ISBN 9979-9391-6-8
Leiðb.verð: 1.000 kr.
Bókabúð
Suðurgotu 1
Sauðárkpókur
S. 453 5950
ATVIK
Ritröð Reykjavíkur-
Akademíunnar og Bjarts
Ritröðin Atvik er vett-
vangur þar sem hug-
myndir og rannsóknir
eru kynntar með þýðing-
um og frumsömdum
textum í hnitmiðuðum
smáritum. Atviksbókun-
um er ætlað að vera
vopn til daglegs brúks,
verkfæri til að nota hér
og nú til að skilja um-
hverfi sitt, breyta því og
umskapa.
Nýjar Atviksbækur:
Framtíð lýðræðis á
tímum hnattvæðingar,
safn nýrra greina eftir
nokkra þekktustu félags-
og stjórnmálafræðinga
samtímans.
Molar og mygla. Um
einsögu og glataðan tíma.
Tengt við tímann. Tíu
sneiðmyndir frá aldar-
lokum: Safn tíu texta þar
sem tíu Islendingar reyna
að finna taug milli sín og
samtímans.
Listaverkið á tímum
fjöldaframleiðslu sinnar,
safn greina eftir Walter
Benjamin.
Frá eftirlíkingu til
eyðimerkur, safn greina
eftir Jean Baudrillard.
ÁLAUSU
Marianne Eilenberger
Þýðing: Soffía Auður
Birgisdóttir
Það getur verið fúlt og
einmanalegt að vera á
lausu, en frelsið getur
líka verið mikils virði.
Kímniskáldið Marianne
Eilenberger skrifar hér
um kosti og galla þess að
vera einhleypur og hve
erfitt getur verið að ná
sér í almennilegan maka
sé áhugi fyrir hendi. Hér
er á ferðinni grafalvar-
legt grín um kynlíf,
peninga, fordóma og
völd; holl og bráðfyndin
lesning fyrir sjálfstæðar
konur.
165 blaðsíður.
Salka
ISBN 9979-766-46-8
Leiðb.verð: 3.480 kr.
98