Bókatíðindi - 01.12.2000, Qupperneq 101
Fræði og bækur almenns efnis
StgrUn lu Ms3ð(Itr og Njnna K Stgu'ð.i'déltif
ÁFRAM FORELDRAR
Sameiginleg forsjá
og velferð barna við
skilnað foreldra
Sigrún Júlíusdóttir og
Nanna K. Sigurðardóttir
I bókinni er fjallað um
foreldrasamstarf, hags-
muni barna og gildi
fjölskyldutengsla eftir
skilnað. Brugðið er ljósi
á þróun kyn- og foreldra-
hlutverka og gerð grein
fyrir niðurstöðum nýrrar
rannsóknar á reynslu
foreldra af sameiginlegri
forsjá með börnum sín-
um eftir skilnað.
Höfundar eru félagsráð-
gjafar, kennarar við
Háskóla Islands og vel
kunnir fyrir meðferðar-
og ráðgjafarstörf sín í
skilnaðarmálum. í bók-
inni er miðlað mikilvægri
þekkingu úr alþjóða-
rannsóknum um áhrif
skilnaða á börn. Foreldar,
bæði fráskildir og aðrir,
geta haft verulegt gagn af
bókinni en hún er einnig
mikilvægt framlag til
fræðilegrar þekkingar fyrir
fagfólk á sviði skilnaðar-
mála.
180 blaðsíður, kilja.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-433-3
Leiðb.verð: 2.900 kr.
ÁKALL ÚR DJÚPINU
Um kristna íhugun
Willem Stinesen
Þýðing: Jón Rafn
Jóhannesson
A hraðfara öld nútímans
þrá margir kyrrð og frið og
að eignast djúpa reynslu
af Guði. Margt leitandi
fólk hefur þannig róið á
mið austurlenskra dul-
hyggjufræða. Þessi bók
fjallar um margar hliðar
kristinnar íhugunar og
djúphygli. Bókin mætir
annasömum heimi nútím-
ans og viðleitni mannsins
að ná góðri einbeitingu
við íhugun sína.
190 blaðsíður.
Skálholtsútgáfan - útgáíu-
félag þjóðkirkjunnar
ISBN 9979-765-00-3
Leiðb.verð: 2.580 kr.
BARNIÐ ÞITT
Nancy Stewart
Þýðing: Sigríður Ásta
Árnadóttir, Þorgerður
Jörundsdóttir
Hagnýtar leiðbeiningar
um umönnun ungbarna.
Eftirfarandi er meðal
efnis sem fjallað er um í
bókinni: Heimilislífið
fyrstu vikurnar, Fæðu-
gjöf, frá brjóstagjöf og
pelagjöf til þess er barn-
ið fer að borða fasta
fæðu, Bleiuskipti og böð,
Barnið þitt
fráfædingu til 18 mánaða aldurs
Nancy Stewart
Líkamlegur, andlegur og
tilfinningalegur þroski
barnsins, Barnið lagt til
svefns, Sífelldur grátur
og hvernig skal taka á
honum, Heilsufar og ör-
yggi á heimilinu. Spurn-
ingum áhyggjufullra for-
eldra er svarað og ýmis
hollráð gefin. Bókina
prýðir fjöldi teikninga og
ljósmynda sem eru bæði
lýsandi og litfagrar.
192 blaðsíður.
Uppeldi ehf.
ISBN 9979-9463-0-X
Leiðb.verð 3.480 kr.
I) A I, A I L A M A
BETRIÍ IEIMUR
BETRI HEIMUR
Hvernig öðlast má
hamingju og þroska
hæfileika sína
Dalai Lama
Þýðing: Súsanna
Svavarsdóttir
Bjartsýni og hugrekki ein-
kenna skrif Dalai Lama.
Hann fjallar um leit
mannsins og þrá eftir ham-
ingju og setur fram sið-
fræðikerfi byggt á skyn-
semi og rökhyggju en ekki
predikunum eða trúar-
brögðum. Hann leiðir
rök að því að allar gjörðir
mannsins beinist að því
að öðlast frið og ham-
ingju. Hann hvetur okk-
ur til að sýna umhyggju
og samúð og líta í eigin
barm í stað þess að ein-
blína á misgjörðir ann-
arra. Góðmennska, heið-
arleiki og réttlæti tryggir
vellíðan og velferð, en
illvilji færir aðeins van-
sæld.
Dalai Lama er leiðtogi
Tíbeta en býr í útlegð á
Indlandi og hlaut friðar-
verðlaun Nóbels árið
1989.
182 blaðsíður.
JPV FORLAG
ISBN 9979-761-26-1
Leiðb.verð: 3.880 kr.
BORC OG NÁTTÚRA
. . . . elrkl andítróur
hrldur umvcrhandl rlnlng
_____ f U "-Ui.
BORG OG NÁTTÚRA
CITY AND NATURE
Trausti Valsson
Reykjavík mótaðist, líkt
og íslensk menning og
búseta, í nánu samspili
við höfuðskepnurnar
jörð, vatn, loft og eld.
Fáar nútímaborgir njóta
þessa nána samspils við
náttúruna en það er
einmitt þetta atriði sem
ljær Reykjavík hve mest
af fegurð sinni og dýpt.
99