Bókatíðindi - 01.12.2000, Side 6
íslenskar barna-og unglingabækur
32 blaðsíður.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9430-5-X
Leiðb.verð: 1.680 kr.
DREKASTAPPAN
Sigrún Eldjárn
Harpa og Hrói eru að
leggja af stað í mjög sér-
stakan leiðangur. Harpa
ætlar að veiða dreka og
elda úr honum afmælis-
máltíð handa mömmu
sinni. Hrói þarf að útvega
afa sínum dósahníf og
sokka en er búinn að týna
peningunum. Þau ákveða
að hjálpast að en þurfa að
leysa ýmsar flóknar þraut-
ir áður en þau ná settu
marki. Þessa bráð-
skemmtilegu sögu hefur
Sigrún Eldjárn skreytt
fjörugum og litríkum
myndum sem lengi má
una við að skoða.
35 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2040-0
Leiðb.verð: 1.890 kr.
lil II*
BÓKABÍJÐ
Rannveigar H.
Ólafsdóttur
Kjarna - 650 Laugar
sími 464 3191
1910 - 2000
90 ára
DÝRIN í TÓNADAL
Olga Bergmann
Dýrin í ævintýralandinu
Tónadal spila og syngja
allan liðlangan daginn
og skemmta sér konung-
lega. Það eina sem veld-
ur þeim áhyggjum eru
nágrannar þeirra, Krill-
arnir, sem þola alls ekki
tónlist. En dýrin eiga ráð
við því! Fjörug og spenn-
andi saga eftir Olgu Berg-
mann sem einnig gerir
ævintýralegar myndirnar.
27 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2001-X
Leiðb.verð: 1.790 kr.
EINHYRNINGURINN
Guðrún Hannesdóttir
Bráðskemmtileg og fal-
leg saga um ævintýralegt
ferðalag í leit að einhjrm-
ingi. Guðrún Hannesdótt-
ir segir söguna og mynd-
skreytir.
32 blaðsíður.
Bjartur
ISBN 9979-865-79-2
Leiðb.verð: 1.880 kr.
EINN DAGUR -
ÞÚSUND ÁR
Sagan af Snorra og Eddu
Elín Elísabet
Jóhannsdóttir
Myndskr.:
Brian Pilkington
Dularfullt ævintýri um
nútímastrák, Snorra, sem
fyrir tilviljun finnur leið
til að ferðast fram og aftur
um tímann. Hann eignast
vinkonu, Eddu, frá árinu
1000. Saman lenda þau
í ótrúlegum ævintýrum.
Sagan vekur áhuga barna
á Islandssögunni.
128 blaðsíður.
Skálholtsútgáfan - útgáfu-
félag þjóðkirkjunnar
ISBN 9979-765-02-X
Leiðb.verð: 2.480 kr.
Ólafur Gunnar Guðlaugsson
ELDÞURSAR
ÍÁLÖGUM
Ólafur Gunnar
Guðlaugsson
Einn sólríkan dag í Alf-
heimum takast Benedikt
búálfur og Daði dreki á
hendur það verkefni að
koma eldþursinum Ra til
heimkynna sinna á Eld-
ey. Sú för reynist ekki
hættulaus, því eldþursar
loga og kveikja í öllu sem
þeir snerta, og víða er eld-
xrr laus! Höfundur skreyt-
ir söguna einstaklega lit-
ríkum og líflegum mynd-
um.
40 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2084-2
Leiðb.verð: 1.890 kr.
STEFÁN JÓNSS0N
EN HVAÐ ÞAÐ VAR SKRÍTIÐ
EN HVAÐ ÞAÐ VAR
SKRÍTIÐ
Stefán Jónsson
,,Kisa mín, kisa mín,
hvaðan ber þig að?“ er
ein af mörgum þekktum
barnavísum sem Stefán
Jónsson samdi, þýddi eða
endursagði og fyrst litu
dagsins ljós í þessari
heillandi vísnabók, sem
hefur verið ófáanleg
áratugum saman en
kemur hér út að nýju,
prýdd fjölda skemmti-
legra mynda. Þetta er bók
sem öll börn hafa gaman
af og kveikir margar ljúf-
ar minningar hjá þeim
sem eldri eru.
40 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0400-7
Leiðb.verð: 1.480 kr.
4