Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 3
BÆNAVIKULESTRAR
1972
zw
Hvíldardagurinn 4. nóvember 1972.
UPPSPRETTA ANDLEGS MÁTTAR
Eftir ROBERT H. PIERSON
Skilnaðarorð Frlesarans við lærisveina sína, er hann var í
þann veginn að stíga upp voru: „en þér skuluð vera kyrrir
í borginni." Lúk. 24, 49. Þeim var skipað fyrir að halda kyrru
fyrir þangað til eitthvað dásamlegt gerðist — þeir áttu að
öðlast sérstakan „kraft af hæðum.“
Er Jesús leit fram í tímann, vissi hann vel prófraunirnar,
reynslurnar og freistingarnar, sem myndu falla í hlut þeim,
sem fylgdu honum á þeim örlagaríku dögum, sem framundan
voru. Hann hafði skipað þá sem boðbera óvinsæls boðskapar,
en boðskapar, sem myndi bjóða endurlausn mönnum alls stað-
ar. Meistarinn skildi greinilega veikleika þeirra manna, sem
Hann hafði kallað til að lifa lífi Hans og til að prédika boð-
skap Hans.
Kristur vissi að mannleg rök voru ófullnægjandi í því að
snúa harðsnúnum syndurum til kærleiksríks Frelsara. Sjálfur
hafði hann mætt erkióvininum og milliliðalaust reynt hina
lævísu táldrægni og nagandi þrákelkni hins illa.
Vitandi að lærisveinar Hans þurftu hjálpar við til að full-
komna tilskipun Hans, og þörfnuðust hennar bráðnauðsynlega,
fyrirskipaði Jesús að fara til Jerúsalem og dvelja þar unz þeir
hefðu öðlazt hjálpina, sem þeir þörfnuðust. Þeir áttu að „dvelja“
— ekki að ganga út í ákaft útbreiðslustarf — þar til þeir
hefðu fyrst móttekið „kraft frá hæðum“.
í fyrirskipunum, sem Jesús gaf lærisveinum sínum fyrir
} T
1