Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 34

Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 34
Fimmtudagurinn 9. nóvember 1972. KRAFTUR STREYMIR ÚT Eftir ELBIO PEHEYRA Jesús Kristur fól söfnuði sínum þá miklu ábyrgð að flytja heiminum fagnaðarerindið um ríki sitt. En hann tók sjálfur á sig ábyrgðina um lokasigur þess. Til þess að söfnuðinum gæti vegnað vel, gaf Drottinn lærisveinum sínum þá starfs- áætlun, sem þeir áttu að fylgja. Við finnum leiðbeiningar hans í kjarna skráðar í Guðspjöllunum og Postulasögunni. Við köll- um þær starfsáætlun Nýja Testamentisins. í Nýja Testamentinu er sýnt á hagnýtan hátt, hvernig aðferð Krists átti að þróast. Við sjáum hans eigin fordæmi í út- breiðslustarfinu. Það er ekki hægt að betrumbæta starfsað- ferðir hans. Síðan lesum við um það, hvernig lærisveinar hans störfuðu. Þeir unnu stórkostlegan sigur, hvern sigurinn á fætur öðrum, af því þeir tóku á móti krafti hans og fylgdu trúlega þeim leiðbeiningum sem Drottinn gaf. Um 3000 manns voru skírðir á einum degi, þegar lærisveinarnir hófu að fram- kvæma starfsskipun sína og „mörg undur og tákn gjörðust hjá postulunum.“ Post. 2, 41, 43. Og bráðlega bættust 5000 manns til viðbótar (4, 4). Jerú- salem var fvllt af kenningunum um Krist (5, 28). „Og mikill fjöldi presta gekk í hlýðni við trúna“ (6, 7). Tala safnaðanna jókst daglega (16, 5), og þúsundir Gyðinga tóku trú á fagn- aðarerindið (21, 20). Eins og hinir fyrstu lærisveinar vitnuðu um kraft Heilags Anda, svo eigum við að bera vitni á okkar tíma. Þessi vitnis- burður ætti ekki að vera í orðum einungis, heldur einnig með lífi okkar. Vitnisburður, þögull en kröftugur Aðventhjón buðu ungum hjónum, sem tilheyrðu öðrum söfn- uði að vera viðstödd samkomu þar sem E.L.Minchin var ræðu- maður. Þau urðu fyrir miklum áhrifum. Þau gátu ekki staðizt 32

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.