Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 39

Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 39
kristinna manna, með sannan kristinn vitnisburð. Viljum við ekki gefa slíkan vitnisburð, bæði ung sem eldri, sem hlýðum á þessi orð, eða lesum þau? En hve Faðirinn, Jesús Drottinn okkar, Heilagur Andi, englar og íbúar, ófallinna heima hljóta að þrá, að við sýnum þessum uppreisnargjarna og synduga heimi hinn endurleysandi kraft Guðs! En hvað þeir hljóta að þrá að sjá okkur opinbera kærleika Hans, sem kom til þessa heims og lifði hér til þess að lyfta mannkyninu upp! Mætti Drottinn ummynda okkur í kröftuga votta, svo að heimurinn geti séð fegurð hjálpræðisins vegna hins kröftuga boðskapar, sem birtist í lífi okkar. Föstudagurinn 10. nóvember 1972. MÁTTUR TILBEIÐSLUNNAR Eftir R. R. BIETZ Að guðsþjónustinni lokinni voru foreldrar Tomma áfjáð í að fara heim. En Tommi flýtti sér ekki, hann stóð kyrr og athugaði kirkjuna gaumgæfilega. Þegar þau hertu á honum, svaraði hann: „En ég hef ennþá ekki séð Guð.“ Þótt þau furðuðu sig á þessu svari hans, voru þau að sumu leyti fegin að heyra það. Þau höfðu oft sagt honum, að fólk færi í kirkju til að mæta Guði — og hann hafði tekið þau á orðinu. Að vísu er það ekki einungis í kirkjunni að við mætum Guði — við getum mætt honum á afviknum stöðum eða jafnvel á götunni eða hvar sem við erum. „Sæll er sá, sem á sér helgidóm, háan eða lágan, í borginni eða uppi á fjöllum, í lágu hreysi eða á eyðistað. Sé það bezti staðurinn, sem hann á kost á til þess að mæta Guði sínum, mun Guð helga staðinn með návist sinni —- og hann verður þá helgaður Drot!t)ni.“ 5. Test., bls. 491—492. Samverska konan spurði Jesú: Feður vorir tilbáðu á þessu fjalli, og þér segið, að í Jerúsalem sé staðurinn, þar sem til- biðja eigi. Jesús segir við hana: Trú þú mér kona, sú stund kemur, er þér hvorki munuð tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem. Þér tilbiðjið það, sem þér þekkið ekki, vér 37

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.