Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 47

Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 47
einnig gefa þeim þá vizku, sem breytilegar þarfir þeirra út- heimta. Okkur ber að rækta þá trú, sem spámenn og postular hafa vitnað um —trú, sem gerir tilkall til fyrirheita Guðs og væntir hjálpar hans á þeirri stundu, er honum þóknast. Himininn bíður okkar og kóróna lífsins. En launum hans er einungis heitið, þeim er sigra. Himininn munu þeir einir öðlast, sem íklæddir eru klæðum réttlætisins. „Hver sá, er hefur þessa von til hans, hreinsar sjálfan sig eins og hann er hreinn.“ 1 lyndiseinkunn Krists var ekkert ósamræmi. Þannig verðum við einnig að verða. Líf okkar verður að stjórnast af þeim meginreglum, er stjórnuðu lífi hans. Kristur á heimilum okkar Beinum við sjónum okkar að hinni fullkomnu fyrirmynd, eða látum við undan síga? Við þurfum að hafa þá trú, er starfar í kærleika og hreinsar hjartað. Kristur verður að dvelja á heimilum okkar. Án hans hjálpar megum við ekki vera. Hann segir: „Þér eruð Ijós heimsins." Hann hefur sam- einað börn sín í söfnuði, svo að hann geti kennt þeim að hafna heiminum og búa sig undir himininn. Hann kom hingað til þess að hefja menn upp frá niðurlægingu syndarinnar og gera þá hæfa fyrir himininn. Hvað meira gæti hann gert fyrir okkur? Og hvernig fáum við undan komizt, ef við vanrækjum slíkt hjálpræði? Allir, sem vilja, geta sigrað. Við skulum alvarlega keppa að því marki, sem oss er fyrir sett. Kristur þekkir vel veik- leika okkar, og til hans megum við daglega leita um hjálp. Við þurfum ekki að öðlast kraft fyrir ókominn tíma. Okkur ber að sigra frá degi til dags. í þessu lífi ber okkur að undirbúast fyrir himininn. Þetta líf er vetur hins trúaða. Naprir vindar mótlætisins leika um okkur, og bylgjur erfiðleikanna rísa andspænis okkur. En þegar Jesús kemur, mun hryggð og andvarpan flýja. Þá kemur sumar hins trúaða. ,,Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra, og aauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til, því hið fyrra er farið.“ 45

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.