Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 46
Trúin traust akkeri
Hjálpræðisvon okkar er akkeri sálarinnar. Það er traust
og öruggt, þegar það nær inn fyrir fortjaldið. Sú sál, sem
hefur akkeri sitt í Kristi, haggast ekki hvað sem á gengur.
„Hversvegna efaðist þú?“ sagði Kristur við hinn sökkvandi
Pétur. Sömu spurningu má leggja fyrir okkur. Hví vanheiðrum
við Guð með vantrú okkar? Guð hefur lofað því að veita okkur
þann styrk, er geri okkur fær um að standast. Biblían veitir
okkur næga ástæðu til trausts og öryggis. Þess vegna getum
við sagt með djörfung, en þó í auðmýkt: Drottinn mun hjálpa
mér, þess vegna mun ég ekki bifast. Líf mitt er fólgið með
Kristi í Guði. Hann lifir, og ég mun lifa.
Gerum Guði það heit, að við vanheiðrum hann ekki með
kjarkleysi og vantrú. Ef við tölum orð trúar, mun trú okkar
vaxa. Lokið dyrum vantrúarinnar, en ljúkið upp dyrum trúar
og djörfungar. Bjóðið himneska gestinum inn í musteri sál-
arinnar. Látum hvert orð, er við tölum eða skrifum, bera
vitni um óhagganlega trú.
Persónulegur vinur
Hugsum ekki að Jesús sé vinur einhverra annarra en ekki
okkar. Gerðu þér grein fyrir því að Jesús elskar þig. Þá munu
ský kjarkleysis og myrkurs hverfa, og við munum syngja
Drottni lofsöng í hjörtum okkar. Við getum hrósað sigri í
Guði dag hvern og glaðst yfir þeirri sannreynd, að himininn
er hlutdeild okkar vegna friðþægingar Jesú og réttlætis hans.
Sá sem treystir þessu, getur hjálpað öðrum að skilja að hjálp
þeirra er í Guði — að þeir geti flúið til Krists og gert tilkall
til þeirrar vonar, sem fagnaðarerindið veitir.
Þú þarft aldrei að vera einmana. Englar eru þér við hlið.
Huggarinn, sem Jesús hét að senda, dvelur hjá þér. Kristur
sagði: „Þér eruð ljós heimsins.“ Það er hlutverk þitt að láta
ljósið skína stöðugt og skært.
Á stund myrkurs — undir óhagstæðum kringumstæðum —
getur hinn trúaði stuðst við uppsprettu alls ljóss og máttar.
V'on hans og djörfung getur endurnýjast frá degi til dags.
„Hinn réttláti mun lifa fyrir trú.“ í þjónustu Guðs þarf enginn
að vera haldinn hugleysi, hiki eða ótta. Guð mun meira en
uppfylla einlægar vonir þeirra, sem honum treysta. Hann mun
44