Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 9
Ekki kallaður til misheppnunar
Útkoman verður ekki misheppnun! Guð hefur ekki kallað
þessa hreyfingu til misheppnunar. Hann hefur kallað hana
til árangurs á okkar tímum! En hún getur ekki orðið heims-
víðtækur árangur fyrr en hún er einstaklingslegur árangur
í lífi einstaklingsins — í hjarta þínu og mínu. Líf okkar verður
að vera dvalarstaður Heilags Anda. Aðeins þá getur Guð notað
okkur eins og Hann verður og eins og Hann þráir að gera.
Það er einlæg ósk mín, að Guð geti á þessari bænaviku
nálgast fólk sitt mjög náið fyrir Heilagan Anda. Það er þrá
mín, að Andinn megi veita Israel iðrun, að Hann megi tendra
elda vakningar og gera þá að dýrlegri siðbót sem starfsetur
kraftinn sem þarf til að ljúka verkinu í nálægri, mjög náinni
framtíð.
Bróðir minn og systir. Vilt þú ekki svara þessari einlægu
köllun? Vilt þú ekki einmitt nú opna hjarta þitt og bjóða
Jesú að koma inn í allri fyllingu sinni og hreinsa þig af synd?
Vilt þú ekki sameinast bræðrum þínum og systrum um víða
veröld í bænagjörð til Guðs, að Hann fylli endurvakið líf okkar
allra Heilögum Anda sínum og búi okkur nú undir bráða komu
Sonar síns.
Sunnudagurinn 5. nóvember 1972.
KÆRLEIKURINN, HINN IVIIKLI MÁTTUR
Eftir M. E. LIND
Þegar Páll postuli sagði: „En Guð auðsýnir kærleika sinn
til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum
í syndum vorum.“ (Róm. 5, 8.), setti hann okkur fyrir sjónir
kærleika að verki. Tjáning Guðs á sjálfum sér og kærleika
sínum til handa aumum mönnum er ekki aðeins orðin tóm.
Hún er ekki ómfögur orðlist. Hann auðsýndi oss kærleika sinn
7