Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 31

Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 31
Um það leyti, sem hann var að komast að þessari niðurstöðu, kom hin unga kona hans heim með Biblíu, sem hún hafði fengið undir óvenjulegum kringumstæðum. Dr. Cailliet lýsir hversu hann bókstaflega þreif bókina úr höndum hennar, þaut afsíðis í kyrrð inn á skrifstofu sína, opnaði hana af tilviljun í Sælu- boðununum, byrjaði að lesa og hélt áfram að lesa klukkustund- um saman. Hann hafði fundið bókina, sem skildi hann. Hið lifandi orð Guðs getur líka talað til hjarta þíns og míns. En til þess að það geti gert þetta, verður að hlýða á það. Því að alveg eins og vinur getur ekki haft samband við okkur, ef við erum upptekin við eigin hugsanir, meðan hann talar, þannig getur Guð ekki heldur talað til okkar ef aðeins eyru okkar, en ekki hugur eru við orð Hans. Ekki getur Hann heldur átt samband við okkur, sem sé nokk- urs virði, ef við opnum orð Hans aðeins og lesum nokkra texta án verulegrar íhugunar. Boðskap Guðs okkur til handa verður ekki náð við einbeitingarlausan lestur. Hann getur aðeins talað við okkur, þegar við hlustum með gaumgæfni eftir hinni litlu hljóðu rödd. Orð kraftarins Biblían er „full af krafti“. Gríska orðið í Hebr. 4, 12., sem þýtt er „fullur af krafti“ í þýðingunni sem vitnað er í, felur einnig í sér merkinguna ,,virkur“, „orkuríkur," „áhrifaríkur." Það er eitthvað í Biblíunni, sem verkar ötullega, orkusamlega, áhrifaríkt, með krafti á líf manna og kvenna til að umbreyta þeim. „Heilagur Andi þroskar í manninum eiginleika Guðs, til að gróðursetja í hjörtum mannanna meginreglur orðs Guðs.“ Dæmisögur Krists, bls. 414. „Orðið .. . verkar með krafti á mannlegt hjarta til þess að koma manninum á réttan rekspöl og halda honum þar.“ Vitnisburður til presta, bls. 80—81. Það væri hægt að lifa í 100 metra fjarlægð frá orkuveri og samt vera án raforku á heimili sínu, ef það væri ekki tengt í samband. Þannig getur þú og ég átt hálfa tylft af Guðs Heilaga Orði á heimili okkar, en við munum ekki öðlast umbreytandi kraft frá því, nema við veitum Orði þess við- töku í huga okkar og leyfum því að verka á hjörtu okkar. Orð Guðs, sem hefur verið veitt viðtaka í hug og hjarta, umbreytir skapgerðinni. Jesús sagði: „Helga þá með sann- leikanum, þitt orð er sannleikur." Jóh. 17, 17.) „Þegar súrdeig 29

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.