Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 4
2000 árum, er lexía fyrir fólk Guðs, sem stendur á þröskuldi
hins eilífa lífs. Kraftur Heilags Anda er á okkar dögum algert
frumskilyrði fyrir áhrifaríkri útbreiðslustarfsemi, eins og hann
var á tímum þeirra. Þessi kraftur er ekki aðeins andlegur
munaður; hann er Guðlegt frunskilyrði fyrir árangri. Hann
er ekki eitthvað, sem við getum tekið eða látið eiga sig og
samt framkvæmt verk okkar á fullnægjandi hátt. Hann er
alger nauðsyn. Hvað lærisveinana snerti var það annað hvort
hvítasunna, eða að mál þeirra færu út um þúfur. Fyrir hinn
síðasta, stríðandi söfnuð, er það einnig annað hvort hvítasunnan
eða misheppnun, nema hvað við bíðum nú haustregnsins.
Úthelling Heilags Anda á hvítasunnudaginn var vorregnið.
Haustregnið á að koma með enn ríkulegri krafti til þess að
undirbúa fólk Guðs fyrir að ljúka verkinu.
Myndirnar of vor- og haustregninu eiga einnig við um per-
sónulegar reynslur. Þráin eftir betra lífi, borin í hjarta manns-
ins, er verk Heilags Anda. Glataði Sonurinn reyndi þessa
sannfæringu um þörf eftir einhverju betra. Langt að heiman,
meðal svínanna, hismisins og hungursins, hvíslaði rödd í hjarta
hans. Hún talaði um heimili, hamingju, öryggi, langt, langt
frá þáverandi, slæmum kringumstæðum hans. Djúp þrá eftir
einhverju betra streymdi um sál hans. Þá er það, að Guðs
orð skrásetur: ,,Hann gekk í sjálfan sig.“
Rödd Heilags Anda hvatti glataða soninn til að taka sitt
fyrsta skref heim á leið. „Ég vil rísa á fætur og fara til föður
míns.“ Ákvörðunin var tekin, skref var stigið — skref, sem
leiddi til dýrlegra sætta og fullkominnar endurreisnar.
Það sem Heilagur Andi gerði fyrir reikandi æskumenni, sem
lýst er í dæmisögunni, gerir hann einnig fyrir unga menn,
ungar konur, drengi, stúlkur og fullorðna nú á dögum. Hann
er ennþá aðili að sannfæringu, sáttagjörð og iðrun. Jesús gaf
loforðið: „Þegar hann kemur, mun hann ásaka (eða sann-
færa) heiminn um synd.“
Meira en sannfæra
Þriðji aðili Guðdómsins gerir meira en að sannfæra hinn
opinbera syndara um yfirtroðslur hans og minna haltrandi
guðsbarnið á mistök þess. Hann upphefur Jesúm, sem von
þeirra um fyrirgefningu og endurreisn. Jesús sagði: „Hann
mun gjöra mig dýrlegan.“ „Það er fyrir Andann að Kristur
2