Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 15
nema aðeins eina villta önd til að setjast á hann og hann er
búinn að vera. Hugleiddu flöktandi hörkveikinn: Andardráttur
eða vindblær, einn einasti vatnsdropi myndi nægja til að slökkva
á honum.
Jesús notaði þessa skýringu til þess að sýna hina við-
kvæmu, vakandi, verndandi umhyggju og kærleika, sem Faðir-
inn hefur fyrir öllum börnum sínum. Mörg þeirra eru veik,
lík hinum brákaða reyr eða flöktandi skari. Satt er það
að vísu, að til eru fáeinir voldugir menn og konur mikillar
trúar og kröftugs hugrekkis í hjörð hans. Við dáumst að, er
við lesum um slíka. Við þráum að líkja eftir þeim. En svo
mörg okkar eru veik og tilbúin að bresta. Við gleymum, að
þeir þurftu líka á hjálp Guðs að halda.
Guð vill að öll börn hans séu sterk í krafti kærleika hans,
því kærleikurinn er máttugur. „Kærleikurinn er máttur.“ T. 2.
b., bls. 135. ,,Því að ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur
anda máttar og kærleiks og stillingar.“ 2. Tím. 1, 7. Það er
ekkert sem kærleikurinn getur ekki staðið augliti til auglitis
við.
Þegar kærleikur Guðs tekur algjör yfirráð í hjartanu, færir
hann með sér aukna trú. Sameinuð veita þau okkur styrk til
að sigrast á veikleika okkar og ótta. Þessi kærleikur eggjar
okkur til að sigra heiminn, holdið og djöfulinn. Hann veitir
okkur kraft til að framkvæma vilja Föðurins.
Meiri kærleika, til að fá meiri kraft, er þörf safnaðarins í
dag. Þetta getum við eignast. Með kærleika til Guðs og með-
bræðra okkar mun okkur veitast styrkur fyrir Heilagan Anda
til þess að vitna fyrir kærleiksvana heimi um kærleika Guðs.
Og fyrir kraft þess vitnisburðar munu aðrir verða dregnir til
Hans.
13