Bænavikan - 04.11.1972, Blaðsíða 21
Lexíurnar úr lífi ísraels eru ekki allar slæmar
Lexíurnar sem eru geymdar í sögu ísraelsþjóðarinnar eru
ekki allar slæmar. Það er líka um hvatningu að ræða. Við
megum ekki gleyma að Drottinn leiddi ísrael öðru sinni að
landamærum Kanaanslands. Og samskonar víggirtar borgir og
ósigrandi vígi, sem stóðu milli Guðs fólks og fyrirheitna
landsins, þegar það var nálægt landamærunum fyrra sinni,
stóðu andspænis þeim öðru sinni einnig. Risamir sem þeir
fundu þar fyrra sinni, voru þar enn 40 árum síðar. Mannlega
talað var það rétt eins ókleift í fyrra sinni fyrir Israelsmenn,
sem voru svo illa búnir og óþjálfaðir í hebþjónustu að standa
hinum kröftuga óvini snúning, sem í seinna sinnið. í þetta
skipti gerði trúin allan mismuninn. „Þeir lögðu allt sitt traust
á hinn almáttuga arm Guðs og hann brást þeim ekki. Nú
gátu ekki voldugir risar eða víggirtar borgir, hersveitir eða
klettavígi staðizt fyrir foringja hersveita Drottins. Drottinn
gekk fyrir hernum, Drottinn beygði óvininn, Drottinn sigraði
fyrir ísraelsmenn." Ættfeður og spámenn, bls. 436.
Hinn síðasti söfnuður Guðs mun ekki ganga inn í hið himn-
eska Kanaansland fyrr en hann hefur lært þessa lexíu til hlítar.
Sérhver trúaður, verður í persónulegri reynslu að sýna algjöra
trú, sem leiðir hann frá flatnsekju efa og vantrúar, til hæðanna,
þar sem sigur fæst í kristilegu lífi. Hið mannlega verkfæri
verður að vinna sitt hlutverk. „Trúin er gjöf Guðs, en við
höfum kraftinn til að sýna hana.“ Sama, bls. 431. Er við
sýnum trú, mun hún aukast. Nýtt líf og þrek og kraftur mun
streyma inn í söfnuðinn. „Hindranirnar munu hverfa, þegar
trúin biður um það.“ Spámenn og konungar, bls. 595. Það mun
vera fögnuður og friður og djúpt varanlegt traust. Við munum
þá bera heiminum vitnisburð okkar með sýnilegum áhrifum.
Sjöunda-dags Aðventistar hafa sterkt sannleikskerfi, sem er
bæði kenningalega og spádómslega séð vel grundvallað á Biblí-
unni. Það er hægt að sýna fram á að það sé vitsmunalega rétt
og sannfærandi þeim, sem tekur á móti Biblíunni sem orði
Guðs. Eins og nemandi í eðlisfræði eða efnafræði skrifar ná-
kvæmlega formúlu sína á töfluna, þannig getum við og sýnt
hverju við trúum.
19