Bænavikan - 04.11.1972, Side 41
form okkar má þó ekki verða svo fastmótað, að ekki gefist
kostur á sjálfkrafa tjáningu. Ef Andinn knýr einhvern til
að segja amen, fer ekki vel á því að safnaðarfólkið setji upp
vandlætingarsvip.
Á vígsluhátið Salómons musteris ríkti regla, en samt gafst
fólkinu tækifæri til sjálfkrafa lofgjörðar. „En er prestarnir
gengu út úr helgidóminum, .. . og allir Levíta söngmenn . . .
stóðu þar klæddir baðmullarskikkjum með skálabumbur, hörp-
ur og gígjur að austanverðu við altarið og hjá þeim hundrað
og tuttugu prestar, er þeyttu lúðra ... og er menn létu lúðra
og skálabumbur kveða við, og hin önnur hljóðfæri og þakkar-
gjörð til Drottins, ,,Því að hann er góður, því að miskunn
hans varir að eilífu,“ þá fyllti ský musterið, musteri Drottins."
2. Krón. 5, 11—13. Að bæn Salómons lokinni, fyllti dýrð Drott-
ins húsið, og fólkið laust upp fagnaðarópi. ,,Þá beygðu þeir
ásjónur sínar til jarðar niður á steingólfið, lutu og lofuðu
Drottin, því að hann er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.“ Kap. 7, 3.
Sjálfkrafa söngur
Á nýju jörðinni mun verða mikill sjálfkrafa söngur. Regla
og festa í guðsþjóunstu er nauðsynleg, en slíkt ákveður þó
ekki eðli guðsþjónustunnar, Blessun hennar er fremur háð
einstaklingnum en guðsþjónustuforminu. Einhver hefur sagt
eftirfarandi: „Hversu vel sem guðsþjónustan er skipulögð,
hversu fullkomin sem tónlist hennar kann að vera, og sálm-
arnir vel valdir, hversu margt gott fólk kann að vera viðstatt,
hversu góð prédikunin er — mun árangurinn verða harla lítill,
ef einstaklingurinn finnur ekki þörf hjá sér til að tilbiðja Guð.
Það sem við gerum, kann að líta vel út, en hið innra getur það
samt verið tómt og tilgangslaust." Pulpit Digest, jan. 1972.
íhugun er annar mikilvægur þáttur guðsþjónustunnar. Sum
okkar hafa ekki lært hina hljóðlátu tilbeiðslu. Gott væri að
allir temdu sér að lúta höfðum í hljóðri bæn, þegar þeir setj-
ast í húsi Guðs, og að biðtíminn væri notaður til að lesa í
orði Guðs. En við erum órólegt fólk — sífellt á harða spretti
til þess að Ijúka verki Guðs, og við höfum ekki tíma til að
stanza til þess að hljóta andlega upplýsingu, sem fæst fyrir
hljóða íhugun. Við gætum lært af reynslu Elía á Hóreb. Sterk-
ur vindur reif fjöllin og sundurmolaði klettana, en Drottinn
39