Bænavikan - 04.11.1972, Qupperneq 48
Við nálgumst leiðarenda
Við þráum að sjá Jesú eins og hann er, og nú munum við
brátt sjá hann. Um þann atburð segir Jóhannes: „Og hann
sýndi mér móðu lífsvatnsins skínandi sem kristall, og rann hún
frá hásæti Guðs og lambsins, á miðju stræti borgarinnar og
beggja megin lífsvatnsins stóð lífsins tré, sem ber tólf sinnum
ávöxt — á mánuði hverjum ber það ávöxt sinn, og blöð trésins
eru til lækningar þjóðunum. Og engin bölvun mun framar til
vera, og hásæti Guðs og lambsins munu í henni vera, og þjónar
hans munu honum þjóna. Og þeir munu sjá ásjónu hans, og
nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar
til vera, og þeir þurfa ekki framar lampaljós né sólarljós, því
að Drottinn Guð skín á þá, og þeir munu ríkja um aldir alda.“
Hamingjuástand hins nýja heims
Á nýju jörðinni munu hinir endurleystu fást við sömu verk-
efnin, sem veittu Adam og Evu þroska og hamingju. Eden lífið
mun verða endurtekið — úti í náttúru Guðs. „Og þeir munu
reisa hús og búa í þeim, og þeir munu planta víngarða og eta
ávöxtu þeirra. Eigi munu þeir reisa og aðrir íbúa, eigi munu
þeir planta og aðrir eta, því að aldur fólks míns mun vera sem
aldur trjánna."
Sérhver hæfileiki mun þroskast. Stórvirkjum mun verða til
vegar komið og hinum æðstu þrám fullnægt. En þó munu nýjar
hæðir stöðugt blasa við, ný furðuverk, sem vekja aðdáun og
ný sannindi að skilja og ný rannsóknarefni, sem efla þroska
líkamans, sálarinnar og andans.
Spámennirnir, sem fluttu boðskap um þessa hluti, þráðu
að skilja hann til fulls — „þeir grennsluðust eftir og rann-
sökuðu vandlega — til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem
í þeim bjó, benti .. . en þeim var opinberað, að eigi væri það
fyrir sjálfa þá, heldur fyrir yður að þeir þjónuðu að þessu, sem
yður er nú kunngjört.“ 1. Pét. 1, 10—12.
Hvaða þýðingu hafa nú þessi mál fyrir okkur, sem lifum
svo nærri uppfyllingu þeirra? Börn Guðs hafa beðið þeirra með
eftirvæntingu allt frá þeim degi, er Adam og Eva urðu að
yfirgefa Paradís.
Við erum ennþá hér í skuggum og amstri jarðneskra fram-
kvæmda. En brátt mun Kristur koma og færa okkur frelsi og
46