Læknaneminn - 01.09.1966, Blaðsíða 7
LÆKNANEMINN
7
svæðunum, Reykjavík og Akur-
eyri, er gert ráð fyrir allt að helm-
ingi fleiri læknum fyrir sama íbúa-
fjölda, enda fer þar fram öll meiri-
háttar læknisþjónusta, sem krefst
sérfræðimenntunar. Þessir staðir
þjóna því öllu landinu í því tilliti.
Ég vil þá vísa til kortsins og
skýra hugmyndina nokkru nánar
með því að lýsa hverju héraði
stuttlega.
1. Reykjavíkurhérað: Nær yfir
sama svæði og núverandi Reykja-
víkurhérað, Kópavogshérað og
Hafnarfjarðarhérað að frádregn-
um Vatnsleysustrandarhreppi.
íbúar um 100 þús. Með þeirri heil-
brigðisþjónustu, sem nú er rekin
á þessu svæði, þarf um 200 lækna
til að fylla allar stöður.
2. Álafosshérað: Nær yfir sama
svæði og núverandi Álafosshérað.
f þessu héraði eru nú um 2 þús.
íbúar og með þeirri starfsemi, sem
rekin er á Reykjalundi, er þarna
nægt verkefni fyrir 3-4 lækna.
3. Akraneshérað: Nær yfir sama
svæði og núverandi Akraneshérað.
Þetta hérað hefur nú hátt á 5. þús.
íbúa, og með þeirri aðstöðu, sem
búið er að byggja upp á Akranesi,
eru þarna næg verkefni fyrir 5
lækna.
4. Borgameshérað: Nær yfir
sama svæði og núverandi Klepps-
jámsreykja- og Borgarneshéruð
að viðbættum Miklaholtshreppi í
Snæfellsnessýslu. Þetta er víðlent
sveitahérað með eitthvað á 4. þús.
íbúa og því næg verkefni fyrir 3
lækna.
5. Ólafsvíkurhérað: Nær yfir
sama svæði og núverandi Ólafs-
víkurhérað. Þetta hérað er fá-
mennt, innan við 2 þús. íbúar. Hins
vegar er íbúaf jöldi á svæðinu vax-
andi og því engin goðgá að gera
þama ráð fyrir tveim læknum.
6. Stykkishólmshérað: Nær yf-
ir sama svæði og núverandi Stykk-
ishólmshérað, að frádregnum
Miklaholtshreppi og Búðardals-
hérað, að undanskildum Klofn-
ings-, Skarðs- og Saurbæjarhrepp-
um. Þetta er hérað með tæpl. 3
þús. íbúa og á að geta borið 3
lækna, enda er sjúkrahús í Stykk-
ishólmi.
7. Reykhólahérað: Nær yfir
sama svæði og núverandi Revk-
hólahérað að viðbættum Klofn-
ings-, Skarðs- og Saurbæjarhrepp-
um í Dalasýslu. Þetta er fámennt
sveitahérað með um 700 íbúa og
bæri aðeins einn lækni.
8. Patreksf jarðarhérað: Nær yf-
ir sama svæði og Vestur-Barða-
strandasýsla og hefur því rúma 2
þús. íbúa og ber 2 lækna.
9. Flateyjarhérað: Nær yfir
sama svæði og Vestur-ísafjarðar-
sýsla, hefur milli 18 og 19 hundr-
uð íbúa og ber 2 lækna.
10. ísafjarðarhérað: Nær yfir
sama svæði og Norður-ísafjarðar-
sýsla og ísafjarðarkaupstaður,
hefur um 4.700 íbúa og gæti borið
að minnsta kosti 5 lækna með
myndarlegu f jórðungssjúkrahúsi á
ísafirði.
11. Hólmavíkurhérað: Nær yfir
Strandasýslu alla. Þetta hérað hef-
ur um 1500 íbúa, en þar sem byggð
virðist þar heldur í samdrætti, er
ekki hægt að gera ráð fyrir nema
einum lækni.
12. Blönduóshérað: Nær yfir
Húnavatnssýslur báðar, hefur tæp
4 þús. íbúa, og þar ætti að vera
nægt verkefni fyrir 4 lækna.
13. Sauðárkrókshérað: Nær yfir
Sauðárkrók og alla Skagafjarðar-
sýslu að frádregnum þrem nyrztu
hreppunum, það er Fells-, Haga-
nes- og Holtshreppum, Þetta hér-
að hefur 4 þús. íbúa, og ættu þar
að vera næg verkefni fyrir 4
lækna.