Læknaneminn - 01.09.1966, Blaðsíða 17
LÆKNANEMINN
17
annars eðlis en kandidatsstaðan í
dag. Kandidatinum finnst hann
vera í þvingunaraðstöðu. Aðstoð-
arlæknisstaða býður upp á bæði
lengri dvöl á hverri deild og meiri
möguleika til sjálfstæðra athug-
una og samvinnu við eldri kollega
deildanna.
Kannske gætum við þá farið að
sjá einhvern lífsvott, hvað fræði-
legar iðkanir snertir.
Lokaorð.
Það þarf réttilega alltaf nokkuð
átak til víðtækra breytinga á
kerfi, sem menn eru aldir upp við
og hafa unnið undir í mörg ár.
Þegar öll rök virðast hníga að því,
að réttmætt sé að gera slíkar
breytingar, hef ég ekki trú á því,
að ekki takist að sannfæra þá
mörgu aðila, sem hafa þær á
valdi sínu. Enga varða þessi mál
þó meir en læknanema og yngri
lækna.
Hér hefur verið stiklað á stóru
og mörg þýðingarmikil atriði lítið
rædd. Ég vona að læknanemar,
sem áhuga hafa á þessum málum.
séu óhræddir að ræða þau frá
fleiri hliðum í blaði sínu og fylgja
eftir því, er til bóta mætti veröa í
framtíðinni.
NlZKA A PENICILLIN.
I apríl 1965 var þýzkur sjómaður lagður inn á sjúkrahús í Reykja-
vík vegna tannkýlis i efri góm. Eftirlitsskip þýzka veiðiflotans flutti
hann í land. Á skipi hans var rosklnn læknir, sem skrifaði langt og
geysinákvæmt læknabréf með sjúklingnum um gang sjúkdómsins og
meðferð. Er hér getið um þetta, vegna þess hve meðferðin er sér-
kennilega konservatíf.
Er fyrstu einkenni komu, en þau sýndu greinilega hvað um var
að ræða, var meðferð hafin á þessa leið:
„Kamillen-Extract-Mundspulungen,
flússige Kost,
Sprachverbot,
Jodpinselung,
Zimmertemperatur,
trochene Warme“.
Næsta dag höfðu einkenni aukizt, og var þá bætt við:
„Kamillen-Inhalation".
Þar sem sjúklingi hrakaði, þrátt fyrir þessa kröftugu meðferð, var
hið gamalkunna lyf penicillin reynt á þriðja degi og fékk sjúklingur
eina injection 400.000 i.e.
Þess má geta að á spítalanum batnaði sjúklingnum á 4 dögum af
kröftugri antibiotica-meðferð.