Læknaneminn - 01.09.1966, Blaðsíða 11
LÆKNANEMINN
11
vera eitt furðulegasta embættis-
mannakerfi í heiminum. Ég álít að
borgarlæknisembættið í Reykjavík
geti alveg eins annað embættis-
rekstrinum fyrir 100 þús. íbúa
Stór-Reykjavíkur eins og fyrir 80
þús. innan borgarmarkanna. Ég
hef alls staðar gert ráð fyrir einu
læknissetri (einni læknamiðstöð) í
hverju héraði, nema á Reykjavík-
ursvæðinu og e.t.v. á Akureyri. Á
Rvk-svæðinu tel ég eðlilegt, að al-
menn læknisþjónusta fari fram í
ca. 10 læknamiðstöðvum ,sem séu
í hinum ýmsu borgarhverfum og
læknarnir skiptist síðan á vöktum
fyrir hverfið. Með þessu móti er
hægt að losna við það fáránlega
skipulag, sem nú ríkir á sviði
kvöld-, nætur- og helgidagalækn-
inga hér í Reykjavík.
Það væri freistandi að ræða hér-
aðaskipanina nánar og rökstyðja
hugmyndina betur, en til þess er
ekkert rúm hér. Ég vil þó aðeins
geta þess, að skipulagningin sums-
staðar byggist á vegaframkvæmd-
um, sem nú er unnið að, eða eru
á döfinni í náinni framtíð. Enda er
víst engin von til þess, að skipu-
lag þetta komi til framkvæmda á
morgun. Þá vil ég enn geta þess,
að gert er ráð fyrir, að í þéttbýlis-
kjörnum víðlendra héraða verði
lækningastofur utan læknamið-
stöðvanna sjálfra. Kemur þá
læknir frá miðstöðinni og annast
þar læknisþjónustu svo oft sem
þörf krefur, hvort heldur það er
daglega eða vikulega.
Að lokum vil ég leggja áherzlu
á, að það er mjög aðkallandi, að
heilbrigðisstjórnin endurskipuleggi
læknishéruð landsins með upp-
byggingu læknamiðstöðva í huga.
Slíkt mundi spara óþarfa fjárútlát
til staða, sem ekki verða læknis-
setur í framtíðinni, en fjármagn-
inu eingöngu beint á staði, sem
byggja skal upp í þessu skyni.
Ekki mun of mikið fé til þessara
framkvæmda, frekar en annarra í
heilbrigðismálum.
AMERfSK STARFSFRÆÐSLA.
I „fornleifa“-rannsóknum í lesstofu læknanema fannst nýlega bók
að nafni „Career Opportunities“, leiðarvísir um námsgreina- og starfs-
val, gefin út af Career Information Service, Life Insurance Company,
N. Y., svo Ijóst er, að ekki hafa allir viljað ana fyrirhyggjulaust út í
lífið. Birtast hér nokkrar setningar úr hinni kjarnyrtu bók. Eru þær
úr kaflanum um læknisfræði:
„The kind of youngster which dogs and little children instinctly
trust on gives promises of future doctor....
It will be well to have a strong robust body..
For many reasons you should have idealism, but especially so that
people believe you and believe in you..
I know no other work which gives such soulfilling and life long
satisfaction ..
I know no other profession that can give a parent so much pride
in the achievement of his son or daughter .