Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1966, Side 7

Læknaneminn - 01.12.1966, Side 7
LÆKNANEMINN 7 hröðum dauða fruma, sem ekki hafa mikinn kraft til að endur- nýjast, t. d. taugafruma, eru spurningar, sem við þekkjum ekki svör við ennþá. Á dögum Erlichs og Kochs, þeg- ar sýklafræðin var að fæðast, var ekkert ónáttúrlegt við að ímynda sér, að sýklar væru orsök iang- vinnra sjúkdóma. Enginn efast lengur um hlutverk mycobacteri- um tuberculosis og treponema pallidum í gangi berkla og syfilis. Þó að veirufræðingum hafi verið fullkunnugt um þessa tvo sjúk- dóma eins lengi og öllum öðrum, hafa þeir verið svo önnum kafnir við að skýra orsakir bráðra far- sótta og svo fastbndnir við þann þankagang um veirusýkingu, er að framan greinir, að ekki eru nema nokkur ár síðan nýtt hug- tak skaut upp kollinum, hugtakið hæggengur veirusjúkdómur, sem á ensku hefur verið nefnt „slow- infection". Þetta hugtak sást fyrst á prenti árið 1954 (1-—3). Það var heldur hljótt um það næstu 6 árin, en nú er það að draga að sér verðskuldaða athygli. Höfundur þess er íslenzkur, dr. Björn Sigurðsson, læknir á Keld- um. Björn skilgreinir þetta nýja hugtak í þremur fyrirlestrum um sjúkdóma í íslenzku sauðfé, er hann flutti við University of London í marz 1954. Fyrirlestr- arnir komu út í Bretlandi síðar á árinu (1, 2, 3). Árið 1958 ritaði Björn ýtarlega yfirlitsgrein um hæggenga sjúk- dóma og birti í Skírni (4). Vil ég eindregið ráðleggja þeim lækna- nemum, sem áhuga hafa á smit- sjúkdómum, að lesa þá grein. Björn skilgreindi þennan nýja flokk smitsjúkdóma með eftirfar- andi sérkennum: 1. Frá því að sýkingarefni berst inn í líkamann og þar til greinilegra einkenna um sýk- ingu verður vart, líður langur tími, nokkrir mánuðir eða nokkur ár. 2. Eftir að ytri einkenni eru kom- in í ljós, standa þau lengi og enda að jafnaði með alvarleg- um sjúkdómi eða dauða. 3. Hver hinna annarlega hæg- gengu smitsjúkdóma tekur að- eins eina dýrategund, og sjúk- legar breytingar finnast venju- lega aðeins í einu líffæri eða einni tegund líkamsvefs. Tvö fyrri atriðin í skilgreining- unni áleit Björn algjör sérkenni á hæggengum veirusjúkdómum, en um þriðja atriðið var hann ekki eins viss og lét þess getið í grein- unum frá 1954, að frekari rann- sóknir mundu ef til vill leiða í Ijós, að sýkingin væri útbreiddari en þar er haldið fram. Björn dró þessar ályktanir af beizkri reynslu íslenzkra bænda af þremur skæðum smitsjúkdóm- um í sauðfé, mæðiveiki (þurra- og votamæði) og visnu og tilraunum sínum með þessa sjúkdóma 1 til- raunastöðinni að Keldum. Þessir sjúkdómar bárust til Islands í ógáti með kynbótahrútum, sem fluttir voru inn frá Þýzkalandi árið 1933 og voru að allra dómi heilbrigðir. Höfðu þeir verið í sóttkví í 2 mánuði áður en leyft var að flytja þá heim á íslenzka sveitabæi. 5 árum seinna mátti rekja uppruna 4 hér áður óþekktra búfjársjúkdóma til þessa inn- flutnings. Af þessum 4 sjúkdóm- um voru 3 veirus júkdómar; visna, votamæði og þurramæði. Visna er sjúkdómur í miðtauga- kerfi sauðfjár, sem svipar um sjúkdómseinkenni og vefja- skemmdir til sclerosis disseminata í fólki. Þó er langvarandi frumu-

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.