Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Side 13

Læknaneminn - 01.11.1967, Side 13
LÆKNANEMINN 13 Um 1300 f. Kr. hertaka Assyriu- menn, sem voru Semítar eins og Babyloniumenn, Babylon. Ashurabanipal konungur í Mesopotamíu (669—626 f. Kr.), sem Grikkir nefndu Sardanapalus, var mikill áhugamaður um listir og vísindi. Hann safnaði saman miklum fjölda skrifara, sem skrif- uðu upp öl1 helztu verk Súmera og Babyloniumanna á leirtöflur, sem svo var komið fyrir á safni í Nineveh, sem var höfuðborg ríkis hans með 300000 íbúum. 1845 e. Kr. finnur Sir Austen Henry Layard 30000 af þessum töflum, sem líklega hafa verið um 100000 í upphafi, o g sendir þær til British Museum. Af þessum töfl- um hafa menn svo getað aflað sér upplýsinga um hina ýmsu þætti þessa þjóðfélags. Hvað læknis- fræði viðkemur, hefur hún snemma skiptist í tvær aðalgrein- ar, skurðlækningar og aðrar lækningar, sem einkum voru í höndum prestanna. 1902 e. Kr. finnst í jörðu 8 feta há steinsú'a, sem á var ritaður elzti lagabálkur, sem til er, eða frá ca. 1950 f. Kr., í Babylon. Þetta voru lög Hammurabis. Þarna á meðal eru nokkrar greinar, sem taka til lækninga: Gr. 218: Ef læknir gerir að- gerð á manni, sem hefur hættu- legt sár, með bronshníf og deyðir hann, eða stingur á abscess í auga og eyðileggur það, skal höggva fingurna af lækninum. Gr. 219: Ef læknir gerir að- gerð á þræl og deyðir hann, skal hann útvega annan jafn verðmæt- an þræ1. Gr. 221: Ef læknir lagar bein- brot eða iðrakvef hjá aðalsmanni, skal hann fá 5 shekela silfurs fyr- ir. Gr. 223: Sé um þræl að ræða, skal eigandi þrælsins greiða 2 shekela silfurs fyrir. Gr. 224: Ef dýralæknir gerir aðgerð á uxa eða asna og bjarg- ar lífi hans, skal hann fá einn sjötta shekel silfurs fyrir. Þessi lög taka svo ti1 eingöngu til skurðlækinga, enda voru lyf- lækningar í höndum prestanna, sem voru valdamesta stétt þjóð- félagsins. Það virðist hafa verið siður hjá alþýðunni, sem hafði ekki ráð á að greiða læknishjálp, að leggja sjúklingana út á götu og bíða þess, að einhver sem fram hjá gengi og hefði haft sama eða svipaðan sjúkdóm, gæfi ráðlegg- ingu um lækningu. Babyloniumenn voru fiölgvðis- trúar og trúðu því, að hinir ýmsu sjúkdómar stöfuðu af völdum djöfla og púka, og hefði hver sjúk- dómur fyrir sig sinn ákveðna djöfsa. 'Ýmsum brögðum var beitt til að losa sjúklinginn við diöfsa, ýmist með bænahaldi eða lyfjum og annarri meðferð. Vatn og bakstrar voru í hávegum hafðir og babyloniska orðið yfir lækni, ,,Asu“, var súmerska og þýddi sá sem þekkir vatn, eða sá sem kann að fara með vatn. Lyfjanotkun þessara tíma hafði mjög mismun- andi læknisfræðilegt gildi, en mörg lyfin höfðu tvímælalaust læknandi verkun og eru notuð enn í dag, t. d. belladonna, ^axerolía, ópíum valmúginn o. fl. Lifrarskoðun úr fórnardýrum var mjög í tízku, bæði til að segja fyrir um gang sjúkdóma og ann- að, svo og stjörnuspár. Draumar og draumaráðningar voru einnig stór þáttur, þar sem draumar voru taldir koma frá guðunum og sögðu þvi fyrir um óorðna hluti, eins og gang sjúkdóms eða styrjaldar o. s. frv. Töluverð ana-

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.