Læknaneminn - 01.06.1975, Page 65
A sama „sársaukalausa“ háttinn, læra þeir erfið-
asta hluta tungumálsins, málfræðina.
Aður en mánuður er liðinn, hafa nemendur, án
lillits til fyrri kunnáttu í málinu, lært um 2-3000
orð, framburð og skrift, og hafa gott valcl á mál-
fræðinni.
Prófanir ári seinna hafa leitt í ljós, að nemendurn-
ir muna ennþá allt sem þeir höfðu lært á þennan
hátt.
llvuS sheður?
Dr. Lozanov byggði þessa aðferð á ,,Savasanna“,
sem er yoga-tækni við slökun. Vöðvar eru slakaðir
og hugurinn losaður við áhyggjur og spennu. I
þessu „frjálsa vitundarástandi“, eða hugleiðslu á-
standi hverfur öll þreyta fljótlega, og heilinn verð-
ur eins og svampur, sem getur drukkið í sig alls
konar þekkingu. Leyndardómurinn er sá, að þekk-
ingin kemur ekki inn í heilann á venjulegan hátt,
vegna þess að nemandinn tekur ekki meðvitandi Jsátl
í náminu. Það lítur út fyrir að ef nemandinn reynir
að skilja og hugsa út í það sem verið er að kenna
honum, þá nær hann ekki eins mikilli þekkingu inn
a jafn skömmum tíma og aðferð Dr. Lozanovs býð-
ur upp á.
Meðan kennarinn þylur námsefnið í bakgrunni
hlj ómlistarinnar verða ákveðnar lífeðlisfræðilegar
breytingar í líkamanum og breytingar á heilabylgj-
um, a-bylgjur, bylgjur hvíldar, eru ríkjandi í heil-
anum. Eftir slíkan kennslutíma virðist bæði greind
°g minni liafa aukist.
Yfirnáttúrlegt?
Það er ekkert yfirnáttúrlegt við þessa aðferð seg-
iri Dr. Lozanov. Eftir að minnið hefur opnast í þessu
draumkennda ástandi virðast engin takmörk fyrir
því, hvað minnið getur innbyrt mikið. Það er jafn
auðvelt að læra 50 eins og 100 orð.
Dr. Lozanov gerði tilraun þar sem hóp af sjálf-
boðaliðum voru kenndir 15 kaflar í franskri mál-
fræðibók á 15 mín. Kaflarnir innihéldu 500 ný orð.
Strax á eftir voru nemendurnir prófaðir skriflega,
°g svo aftur 3 dögum seinna. Niðurstöðurnar voru
frábærar, ótrúlegar. „Ekkert orð gleymdist“, segir
Dr. Lozanov.
Efasemdir?
Það var í kringum 1960, sem Dr. Lozanov full-
komnaði þessa aðferð.
Þá liðu nokkur ár meðan kenningin var m. a.
prófuð af „Medical Postgraduate Institute“, „Scien-
ce and Research Institute“ og „Institute of Pedago-
gics“, o. fl. stofnunum, sem hafa með slík mál að
gera.
Dr. Lozanov hélt því fram, að hann gæti aukið
minnishæfileikannn um meira en 50% með því að
nota „suggestologiu“. Hópur efasemdarmanna trúðu
þessu að sjálfsögðu ekki, þrátt fyrir þær sannanir,
sem Dr. Lozanov lagði fram.
Dr. Lozanov tókst að fá þessa menn til að mæta í
tíma hjá sér í nokkrar vikur svo að hann gæti sann-
að sitt mál. Eftir nokkrar vikur voru þessir menn
orðnir altalandi á tungumál, sem þeir þekktu ekki
áður; gegn vilja sínum. Hvað gátu þeir sagt?
Útbreiðsla?
1966 stofnaði búlgarska menntamálaráðuneytið
I.S.P. Síðan hefur vitneskjan um þessa aðfet ð vald-
ið byltingu í búlgörsku menntakerfi, sem að vísu
stendur enn yfir.
Dr. Lozanov hefur ferðast mikið til annarra landa
og haldið fyrirlestra um rannsóknir sínar.
Undirritaður hafði tal af konu nokkurri, sem
hafði setið fyrirlestur hjá Dr. Lozanov í Banda-
ríkjunum fyrir skömmu, og hélt hún því fram, að
Dr. Lozanov sjálfur, talaði um 25-26 tungumál.
Að sjálfsögðu ganga allar miklar breytingar
hægt fyrir sig, en fréttzt hefur, að ýmsir skólar á
vesturlöndum séu að taka upp „suggestologiu“ t. d.
í Sviss.
Lohaorð
Grein þessi er þýdd og endursögð úr bókinni
„Psychic Discoveries Behind the Iron Curtain“, eftir
Sheila Ostrander og Lynn Schroeder, en þær hafa
mikið ferðast um þessi lönd og kynnt sér málefnið.
Astæða er til að mæla með þessari bók fyrir alla
þá sem þrá vísindalegar skýringar á dulrænum fyr-
irbærum.
LÆICNANEMINN
53