Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Blaðsíða 18

Læknaneminn - 01.04.1986, Blaðsíða 18
hai'a verið nefnd hafa komið fram hjá ákveðnum stof'ni svína, en þar virðist nægja að svínið verði fyrir miklu lík- amlegu eða andlegu álagi til að ein- kennin korni fram. Eina aðferðin sem nothæf er til að greina sjúkdóminn er að taka vöðva- biopsíu eða vöðvasýni úr viðkomandi einstaklingi og prófa næmni hennar gagnvart ákveðnum efnum. Þau efni sem notuð hafa veriö eru caffein, halothan og dantrolene. Óeðlileg næmni gagnvart caffeini einkennir vöðvasýni úr einstaklingum sem geta fengið MH. Caffein veldur miklu meiri kraftþróun í sýnum úr þessum einstaklingum en úr eðlilegu fólki. í tilraunum þar sem sýnin hafa verið meðhöndluð þannig að frumu- himnum vöðvafrumanna hefur verið eytt (skinned fibers) og caffein síðan gefið, þá losnar Ca2+ úr geymslum í frumunni, en það leiðirtil samdráttar. Einnig er talið niögulegt að caffein geti farið í gegnum frumuhimnur og valdið slíkri Ca2+ losun. Sumir vilja þó halda því fram að þessi losun sé tiltölulega lítil en hún geti samt nægt til að koma af stað enn frekari Ca2+ losun (Ca induced Ca release) og því verið um óbein áhrif að ræða. Til- raunir þar sem hlutar af sarcoplasmic reticulum (SR), sem erein af geymsl- um frumunnar fyrir Ca“+, hafa verið einangraðir benda til þess að caffein auki það Ca2+ sem losnar við ertingu og minnki það magn Ca2+ sem SR getur bundið. Halothan er það efni sem yfirleitt er álitið orsakavaldur MH sjúk- dómsins en sem í raun endurspeglar einungis vinsældir efnisins sem svæfingarlyfs. Halothan er ethan af- leiða með efnunum Br, Cl, og F. í venjulegum vöðva eykur halolhan samdráttarkraft vöðvans bæði þegar hann er ertur í líkamanum sjálfum (in vivo) og í tilraunum í líffæra- baði (in vitro). í einni in vitro tilraun var caffeini sprautað inn í vöðva- frumu gegnum örskaut, en í það litlu magni aö enginn samdráttur varð. En við þessar aðstæður var nægilegt að gefa halothan í kliniskum skammti til að stöðugur samdráttur án utanað- komandi ertingar ætli sér stað. Þessi samverkandi áhrif caffeins og ha- lothans benda því til þess að halothan hafi einnig áhrif á Ca2+ losun inni í frumunni. Lyfið Dantrolene sodium kom á markað seinni hluta sjöunda áratugar- ins. Sé það gefið dregur mjög úr sam- drátlarkrafti vöðva. Ahrif þess virö- F Br I I F ------ C -------- C ---------- C1 I I F H Mynd 2. Hulothan sameind. ast vera eingöngu á himnukerfi vöðvafrumunnar. 1 tilraunum hefur komið í Ijós að það hefur engin áhrif á starfsemi hreyfitauga og ekki á boð- efnalosun né starfsemi endaplölu. Himnuspenna og boðspennumyndun verða heldur ekki fyrir áhrifum frá lyfinu. Einnig hefur verið sýnt fram á að ef Ca2+ styrkur er aukinn inni í frumu, með því að sprauta inn í hana Ca"+ gegnum örskaut, fæst samdrátt- ur hvort sem dantrolene er til staðar eða ekki. Niðurstaðan hefur því orðið sú að lyfið hafi áhrif á T-kerfið, SR kerfið eða á tengslin milli þessara kerfa. Nýjustu rannsóknir gefa í skyn að nærvera dantrolens leiði til minni Ca2+ losunar í vöðvafrumunni. Dan- trolene er eina lyfið sem nothæft er gegn MH og hel'ur það gefið góða raun og dregið mjög úr hlutfalli þeirra er fá sjúkdóminn og látast í halothan- svæfingu. Séu niðurstöður rannsókna á MH og áhrifum efnanna caffeins, halo- thans og dantrolens bornar saman benda þær eindregið til þess að erfða- galli sá er leiði til MH sjúkdóntsins valdi óeðlilegri starfsemi í himnu- kerfum vöðvafrumunnar. Rannsóknir síðustu ára hafa því mest beinst að starfsemi þessara kerla, en þær hafa reynst mjög erfiðar. Reynt hefur ver- ið að einangra kerfin hvert fyrir sig eða hluta úr þeim, en niðurstöður slíkra tilrauna hafa verið, mjög óskýr- ar. Efnið aequorin sent hefur þann eiginleika að það ljómar (fluorescent) í nærveru Ca2+, helur verið notað til að mæla styrk Ca2+ í innanfrumu- vökva. Þá þarf að sprauta efninu inn í frumuna með örskauti á réttu augna- bliki og hefur það reynst mjög erfitt í framkvæmd. Annað efni sem nýlega er f'arið að nota í sama tilgangi er quin2. Kostir þess fram yfiraequorin er að liægt er að setja það beint út 1 utanfrumuvökvann. Efnið getur flætt yfir frumuhimnur og inn í frumur. Þegar þangað er komið breylist sam- eindin fyrir tilstilli innanfrumuensíma og verður ógegndræpt. þ.e. geturekki llætt út aftur. Nú er því mögulegt að hreinsa utanfrumuvökvann af quin2, erta frumuna og mæla Ijómunina sem er þá mælikvarði á hversu mikið Ca2+ losnar úr geymslunum við ertinguna. Rannsóknir af þessu tagi eru í gangi á rannsóknastofu í frumulíf- fræði (læknadeild). Þar er greinar- höfundur ásamt læknastúdentunum Stefáni Kristjánssyni, Óskari Þ. Jó- hannessyni og Ómari ívarssyni að at- huga á hvaða hátt halothan, caffein og dantrolene hafi áhril'á Ca2+ losun í frumum. Einnig ætlum viö athuga hvort einhver munur er á þessari starfsemi í frumum úr eðlilegum ein- staklingum og þeim sem geta fengið MH. Niðurstöður þeirra rannsókna verða birtar á ráðstefnu um rannsókn- ir í læknadeild sem haldin verður sept.-okt. 1986. A þessari ráðstefnu er einnig ráð- gert að kynna þær rannsóknir seni fram hafa farið á útbreiðslu MH hér á landi. Þær eru framkvæmdar af 16 LÆKNANEMINN ^1985 - '/1986 - 38.-39. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.